Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynnir í einkasölu:
Hús á eftirsóttum stað í hjarta Hafnarfjarðarbæjar við Vitastíg 12. Einbýlishúsið er á tveimur hæðum með nýlegum frístandandi bílskúr sem útbúin hefur verið sem aukaíbúð ( góð útleigueining fyrir þá sem það vilja )
Góð aðkoma er að húsinu, hægt að koma allt að fimm bílum á steypt bílaplan hússins. Í bakgarðinum sem snýr vel á móti sól er bæði steypt plan og timburverönd, aflokaður og skjólsæll reitur með heitum potti.
Einbýlishúsið er með tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svölum sem gefa gott útsýni. Í bakgarðinum er pallur og útivistaraðstaða með heitum potti, einangraður geymsluskúr. Auk þess er bílskúr með sérinngangi sem útbúinn hefur verið sem aukaíbúð.
Húsið hefur verið mikið endurbætt í gegnum tíðina, en árið 1999 voru lagnir endurnýjaðar að hluta til. Núverandi eigendur hafa búið í húsinu frá 2013 og á þeim tíma hafa eftirfarandir endurbætur átt sér stað.
2013 = Rafmagn endurnýjað að hluta og geymslukofi 9m² settur í garðinn... rafmagnskynding þar og einangrað loft og gólf
2017 = Ný svalahurð og fataskápar í forstofu
2017 = Bílskúr byggður
2018 = Gesta wc í forstofu byggt
2019 = Neðri hæðin tekin í gegn með hita í gólfi og nýjum skápum ofl.
2020 = Húsið málað að utan
2021 = Þakið málað
2021 = Innkeyrsla og í kringum húsið steypt
2021 = Nýr stigi úti og svalir endurbyggðar með stækkun og þaki að hluta.
2022 = Efri hæðin tekin í gegn og nánast allt endurnýjað. Ný rafmagnstafla á efri hæðinni
2023 = Pallur, skjólgirðingar, heitur pottur og nýir gluggar á þremur hliðum hússins ásamt nýrri hurð í þvottahúsi.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isSmelltu á linkinn til að skoða húsið í 3DNánari lýsing.Aðalhæð ( efri hæð) Gengið er upp timburstiga upp á efri hæðina og komið inn í flísalagt anddyri með fataskápum og dökkum flísum á gólfi. Inn af anddyri er gestasalerni með sömu flísum á gólfi. Upphengt salerni og handlaug. Opnanlegur gluggi er inn á gestasalerni.
Frá anddyri er gengið inn í opið og bjart alrými sem telur eldhús, stofu og borðstofu með útgengi út á svalir, yfirbygðar að hluta og aðrar grillsvalir. Aukin lofthæð er þar sem hæðst er í alrýminu, á gólfi er harðparket. Gott skápa- og vinnupláss er í eldhúsinu. Eldhúsinnrétting er L-laga hvít með stóra eyju. Viðarborðplötur á borðum. Á eyjunni er helluborð og vifta þar fyrir ofan. Loft yfir eldhúsi er niðurtekið með innbyggða lýsingu í. Gert er ráð fyrir þrem barstólum við eyjuna. Mikið og gott skápapláss í innréttingunni. Bökunarofn er í vinnuhæð, uppþvottavél er innbyggð og nýlegur Samsung amerískur kæliskápur, vínkælir og auka kælir í innréttingu fylgir einnig með. Stofan er með vegg sem aðskilur rýmið og stiga niður á neðri hæð hússins og opið að öðru leyti að borðstofunni. Frá borðstofunni er gengið út um tvöfalda vængjahurð út á stórar svalir sem eru yfirbyggðar að hluta til, skjólgóðar með mikið og flott útsýni. Hurð þaðan vísar svo út á sér grillsvalir.
Neðri hæð, gengið er niður teppalagðan timburstiga niður á neðri hæð. Komið er inn í hol sem nýtt hefur verið sem skrifstofuaðstaða með hvítum skápum og skrifborðsaðstöðu, auðvelt væri að nýta það rými sem gott fjölskyldurými/sjónvarpshol. Baðherbergið er með kork flísar á gólfinu og Fibo Trespo plötur á veggjunum. Innrétting er hvít með gott skápapláss, dökka plast borðplötu og handlaug. Upphengt salerni þar við hæð og stór og góð sturta með sturtuþili. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Herbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð. Í hjónaherberginu eru nokkrir fataskápar og harðparket á gólfi. Í hinu herberginu er harðparket á gólfi og fataskápur. Þvottahúsið / lagnarýmið er sér með málað gólf og tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gengið er út frá þvottahúsi út í garðinn. Gólfhiti er á allri neðri hæðinni að undanskildu þvottahúsinu.
Bílskúrinn ( byggður árið 2017 ) Tvær gönguhurðir þar inn, einn inngangur er beint inn í alrými sem er eldhús og stofa með dökkum flísum á gólfi. Hvít eldhúsinnrétting með gott skápa- skúffupláss og vask ásamt litlum ísskáp. Hátt er til lofts í rýminu. Inn af því er sér herbergi með sömu flísum á gólfi. Bílskúrshurðin er til staðar, komið er upp hengi til að hylja hana af að hluta til. Frá alrými er líka aðgengi að sér baðherbergi með sömu dökku flísum á gólfi, sturtuklefa, handklæðaofni, upphengdu salerni og hvítri baðinnréttingu með handlaug. Speglaskápur þar fyrir ofan. Sér gönguhurð er út frá baðherbergi út á steypta veröndina.
Garðurinn er allur aflokaður og flottur með steypt plan og timburverönd, heitur pottur er á milli bílskúrsins og geymsluskúrssins. Mjög huggulegt og fjölskylduvænt. Frágangur er allstaðar til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.