Ágúst Ingi Davíðsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annari hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Salahverfi Kópavogs.
3D linkur - Skoðaðu eignina í 3D hér- Tvö svefnherbergi
- Suður svalir með svalalokun
- Geymsla innan íbúðar, sem er í dag notuð sem þriðja svefnherbergið.
- Stutt er í helstu þjónustu, leikskóla, skóla, sund, íþróttahús og verslanir.
- 201 KópavogurSkv. HMS er birt stærð eignarinnar samtals 110,6m².
Bókið skoðun hjá Ágúst í síma 787- 8817 eða með tölvupósti á netfangið agust@remax.isÍbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, samliggjandi eldhús og stofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með hvítum fataskáp.
Stofa og eldhús eru í opnu og rúmgóðu samliggjandi alrými. Útgengi út á
suður svalir sem eru með svalalokun.
Eldhúsið, þar er hvít innrétting með bæði efri og neðri skápa og hvítum flísum á vegg á milli skápa. Gott vinnu- og skápapláss. Bökunarofn, eldhúsvifta og helluborð frá Electrolux. Gert er ráð fyrir þvottavél og ísskáp í innréttingu. Gluggi er við innréttingu sem gefur góða birtu inn.
Hjónaherbergið er rúmgott og með stórum fataskáp.
Svefnherbergið er einnig rúmgott og með tvöföldum fataskáp.
Geymslan er innan íbúðar og er notuð í dag sem þriðja svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með handlaug og skúffu. Baðkar, sturtuklefi og upphengt salerni.
Þvottahúsið er flísalagt. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss og skolvaskur.
Gólfefni: Íbúðin er öll parketlögð nema í forstofu, baðherberginu og þvottahúsi, þar er flísalagt.
Sameignilegur garður umlykur allt húsið.
Nánari upplýsingar veitir:
Ágúst Ingi Davíðsson, löggiltur fasteignasali í síma 787- 8817 / agust@remax.is__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vskÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.