Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallega og vel skipulagða 4. herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) ásamt bílskúr.
Byggingarréttur að byggja 60,9 fm rishæð ofan á eignina.
Skráning eignar: íbúð merkt 01 0201 stærð 111,2 / geymslu merkta 0003 stærð 3,4 fm / bílskúr merktur 03 0101 stærð 32,0 ásamt þakrýmis merkt 0202, skráð 0,0 m². samtals: 146,6 fm.
Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is - Sýni alla daga
Nánari lýsing: Sérinngangur
Inngangur/Anddyri: Teppalagður stigi og pallur á efri hæð
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting undir handlaug ásamt speglaskáp, handklæðaofn, upphengt salerni, opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgott, gott skápapláss.
Herbergi: Parket á gólfi, gott skápapláss.
Herbergi: Parket á gólfi, fataskápar.
Eldhús: Parket á gólfi, mjög gott skápa- og borðpláss, steinn á borði, stæði fyrir uppþvottavél, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, góður borðkrókur.
Stofa: Parket á gólfi, opin og björt, útgengt út á rúmgóðar svalir suð-vestur.
Geymsla: Sér geymsla í sameign, 3,4 fm.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús í sameign.
Bílskúr: Steypt gólf með teppi að hluta, hiti, heit og kalt vatn, innangengt frá þvottahúsi og útgengt út í bakgarð. (vinstra megin fyrir framan hús)
Garður: Sameiginlegur skjólsæll garður. / Bílastæði fyrir framan bílskúr.
Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
Byggingarlýsing
Núverandi hús:
Húsið er hannað af arkitektunum Sigvalda Thordarsyni, Gísla Halldórssyni og Kjartani Sigurðssyni, og byggt árið 1950.
Útveggir eru staðsteyptir upp á hefðbundinn hátt, einangraðir að innan og múrhúðaðir. Að utan eru útveggir múrhúðaðir
og steinaðir. Húsið hefur síðan verið málað hvítt og grátt í seinni tíð. Þak hússins er borðaklætt og lagt þakpappa og
bárustáli. Þakkantur er steyptur og gluggar eru timburgluggar með tvöföldu einangrunargleri. Skorsteinn hússins er ekki í
notkun.
Byggingarréttur: 60,9 fm birt flatamál, 86,9 nettóflötur.
Húsið er þríbýli á þremur hæðum og sótt er um leyfi til byggingar rishæðar. Þak er hækkað og settir 6 kvistar, ásamt
suðursvölum. Þök verða borðaklædd, lögð þakpappa og bárustáli. Þak verður REI 60 (með klæðningu að innan í flokki 1).
Hliðar á kvistum verða plötuklæddar í þaklit. Gluggar eru timburgluggar með tvöföldu einangrunargleri. Nýr stigi verður
gerður milli 2.hæðar og nýrrar þakhæðar. Innveggir eru byggðir úr 70mm grind, einangraðir og klæddir með 2x13mm
gifsi beggja vegna. Votrýmisveggir eru úr 70mm veggjagrind með steinullareinangrun klæddir með 2 x 13mm
rakaþolnum gipsplötum, í ytra lagi. Neysluvatnslagnir eru lagðar rör í rör, og upphitun verður á hefðbundinn hátt með
heitavatnsofnum undir gluggum. Inntökin eru í lagnarými í kjallara. Loftræsting verður um opnanleg fög í öllum rýmum.
Tvö bílastæði eru á lóð og sorp er staðsett við útitröppur hússins.