RE/MAX Ísland logo
Skráð 18. ágúst 2026
Söluyfirlit

Túngata 42

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
222.9 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
166.250.000 kr.
Brunabótamat
111.000.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1920
Þvottahús
Garður
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2002101
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta/upprunalegt
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

RE/MAX & SALVÖR ÞÓRA Lgf. & HERA BJÖRK Lgf. & kynna :

( Salvör: 844-1421salvor@remax.is  |  Hera Björk: 774-1477 / herabjork@remax.is)  
Túngötu 42, reisulegt og virðulegt timburhús á steiptum grunni með karakter og mikla möguleika. Eignin býður upp á um 230 fm íbúðarrými á 3 hæðum ásamt rúmgóðum bílskúr, fallegum og grónum garði og sjaldgæfri eignalóð í miðborg Reykjavíkur.
Um er að ræða sérstaka og rúmgóða eign og býður skipulag hússins upp á fjölbreytta möguleika fyrir td. fjölskyldur, sendiráð eða fyrirtæki sem leita að húsnæði með sérstöðu, reisulegum karakter og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. 
ATH! Vegna sérstöðu eignarinnar hafa seljendur ákveðið að setja hana á markað án fyrirfram ákveðins ásetts verðs og óska eftir að áhugasamir kaupendur meti eignina og geri tilboð í samræmi við eigin verðmat.

SMELLTU HÉR - skoða 3D af MIÐHÆÐ 
SMELLTU HÉR - skoða 3D af EFRI HÆÐ
SMELLTU HÉR - skoða 3D af KJALLARA
SMELLTU HÉR - skoða 3D af BÍLSKÚR

Helstu kostir:
  • Reisulegt timburhús á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur
  • Samtals 222,9 m², þar af 34,4 m² bílskúr 
  • 451,2 m² eignalóð í 101 Rvk.
  • Gróinn og skjólgóður garður
  • Rúmgóður bílskúr og gott bílastæði á lóð
  • Fjölbreytt skipulag og miklir möguleikar til endurnýjunar og framtíðarnýtingar

Nánar um eign:
Upprunalega var húsið byggt árið 1890 sem einbýli. Árið 1920 var því breytt í 3 íbúðir og 1980 aftur breytt í 3ja hæða 188,5 m² einbýlishús og síðar byggður 34,4 m² bílskúr, samtals 222,9 m². Sú breyting skapaði einstaklega fjölhæft skipulag með mörgum stofurýmum, svefnherbergjum, eldhúsum, baðaðstöðu og aðskildum svæðum sem henta bæði fyrir heimili og rekstur.

Nánari lýsing:
Skipulag eignarinnar býður upp á mikinn sveigjanleika þar sem mismunandi hæðir og rými skapa bæði næði og fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Innra byrði hússins hefur að stórum hluta varðveitt sinn upprunalega karakter með mikilli viðarnotkun, gegnheilum hurðum, sérsmíðuðum innréttingum og hlýlegu yfirbragð. Innréttingar og innviðir innanhúss voru að miklu leiti endurnýjaðir á 8.áratugnum sem gefur nýjum eigendum einstakt tækifæri til að færa eignina til nútímalegra horfs með vandaðri endurnýjun þar sem hægt er að halda í karakter, hlýleika og sögu hússins.

1. hæð:
Gengið inn á miðhæðina sem er hjarta hússins með stofu, borðstofu, eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Stofa og borðstofa tengjast með tvöföldum hurðum og góðir suðurgluggar skapa bjart og hlýlegt yfirbragð. Sérsmíðaðar viðarinnréttingar og innbyggðar hillur. Eikarhurðir og karmar. Veggfóður og yfirborð frá veggja frá endurgerð hússins um 1980–1990. Teppi og korkur á gólfi. 
Gluggar endurnýjaðir árið 2023.
2.hæð
Efri hæð skiptist í bjarta stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Hæðin nýtur mikillar birtu og býður upp á góða möguleika. 
Viðarinnréttingar og yfirborð frá um 1990-2000. Parket á gólfum.
Kjallari: 
Forstofa, 2 herbergi, miðrými m/skápum, baðherbergi og 2 geymslur. Tengi fyrir eldhúskrók í öðru herbergi. Skipulagið hentar vel sem sjálfstæð íbúð, gestaaðstaða, skrifstofur eða vinnurými og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Bílskúr:
Rúmgóður bílskúr með sér vinnuaðstöðu inn af. Hentar jafnt fyrir bílageymslu, verkstæði, vinnustofu eða geymslu.
Góð lofthæð og rúmgóð innkeyrsla.
Lóðin:
Einn stærsti kostur eignarinnar er rúmgóð 451,2 m² eignalóðin sem fylgir húsinu en slíkt er orðið sífellt sjaldgæfara í miðborg Reykjavíkur og eldri grónum hverfum borgarinnar. Garðurinn og lóðin skapa eigninni skjólgott og rólegt yfirbragð með góðu næði. 
Einkainnkeyrsla, rúmgóður bílskúr og skjólgóð aðkoma styrkja enn frekar möguleika eignarinnar fyrir sendiráð, stjórnendabúsetu eða fyrirtækjarekstur þar sem bæði þarf að huga að næði og góðu aðgengi. Bílskúrinn og þjónusturými hans bjóða einnig upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir geymslu, vinnuaðstöðu eða aðra stoðstarfsemi.

Framkvæmdir og viðhald undanfarin ár er ma.:
2025 - 2026
Hitaveiturör endurnýjað frá brunni og inn í hús, 2 nýir mælar og nýr inntakskrani.
Nýr ofn í geymslu í skúr.  Gluggar í kjallara málaðir að utan. Útveggur kjallara og við tröppur málað. 
2023 - 2024
Bárujárn á hliðum hús málað ásamt gluggum að utanverðu. Ljósleiðari tengdur. 
Tröppur endurnýjaðar. Eldhúsgluggi í risi málaður. Nýtt klósett í rishæð. 
2022 og fyrr
Tröppugeymslum lokað með rist 2012. Rafmagnshiti settur í tröppur 1990.
Grindverk reyst á milli húsa númer 40 og 42 árið 2005. 

Eign sem gæti hentað sérstaklega vel fyrir:
- Stórfjölskyldur eða kynslóðabúsetu
- Sambland heimilis og atvinnustarfsemi
- Sendiráð eða búsetu starfsmanna sendiráða
- Húsnæði fyrir stjórnendur / erlenda sérfræðinga
- Lögfræði-, Arkitekta-, Sálfræði eða Hönnunarstofur

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is
     Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is

** Eignin verður eingöngu sýnd í einkasýningu.**
-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!
- Salvör Þóra, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
- Hera Björk, lgf í síma 774-1477 eða herabjork@remax.is
Byggt 1985
34.4 m2
Fasteignanúmer
2002101
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.500.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Lautarvegur 8
108 Reykjavík
254.4 m2
Hæð í þríbýlishúsi
634
786 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Suðurgata 100
102 Reykjavík
201.3 m2
Einbýlishús með aukaíbúð
837
894 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Miðbraut 24
170 Seltjarnarnes
197.9 m2
Þríbýli
523
793 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Bankastræti 11
101 Reykjavík
183.2 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
25
1,010 þ.kr./m2
185.000.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin