RE/MAX Ísland logo
Skráð 1. feb. 2026
Söluyfirlit

Brúarás 1

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
250 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
176.900.000 kr.
Fermetraverð
707.600 kr./m2
Fasteignamat
136.500.000 kr.
Brunabótamat
127.750.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1992
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Tveir inngangar
Fasteignanúmer
2045862
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hiti - gólfhiti og ofnar að hluta
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Botnstykki í stofuglugga við svalahurð orðið lélegt.
Sprunga í handlaug á baðherbergi á efri hæð (enginn leki)
Snjóbræðsla á bílastæði hefur aldrei virkað.
Dyrabjalla virkar ekki. 
Fallegt og vel skipulagt 5-6 herbergja endaraðhús með tvöföldum bílskúr við Brúarás í Árbæ.
Sigrún Matthea og RE/MAX kynna glæsilegt og mikið endurnýjað endaraðhús á tveimur hæðum með rislofti og sérstandandi tvöföldum bílskúr. Um er að ræða einstaklega góða fjölskyldueign á rólegum og grónum stað í Árbæ. Skjólgóð verönd er á milli húss og bílskúrs og hellulögð verönd í bakgarði.  
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin 208 m² hús á tveimur hæðum með geymslulofti og bílskúr 42 m² samtals 250 m². Nánari upplýsingar veitir Sigrún Matthea  695-3502  eða á netf:  sms@remax.is
Viltu sækja söluyfirlit strax 

Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi það er stutt er í leik og grunnskóla íþróttaaðstöðu sundlaug, verslanir og ýmsa aðra þjónustu. Frábærar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenninu stutt að njóta útivistar í náttúruperlum í Elliðaárdal og Heiðmörk.

Eignin skiptist í forstofur, eldhús / borðstofu / stofu í björtu alrými með mikilli lofthæð, fjögur svefnherbergi, leikherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottaherbergi.
Tveir inngangar, á efri hæð og sérinngangur á jarðhæð.Tvöfaldur bílskúr. 
Afgirtur timburpallur og hellulögð verönd er fyrir framan húsið og góður bakgarður afgirtur með runnum og hellulagðri verönd aftan við hús.  

Efri hæð: 
Anddyri:  Fataskápur flísar á gólfi. 
Eldhús / borðstofa / stofa: Eldhúsinnrétting endurnýjuð að hluta.  Bjart alrými mjög hátt til lofts Quick step harðparket á gólfi. Útgengt úr stofu út á svalir og þaðan niður í bakgarð.    
Svefnherbergi I:  Rúmgott herbergi góðir fataskápar Quick step harðparket á gólfi. 
Leikherbergi / sjónvarpsrými: Innbyggður lítill fataskápur, Quick step harðparket á gólfi,  úr þessu rými er fellistigi upp á mjög rúmgott geymsluloft. 
Baðherbergi: Lítil innrétting m/ handlaug, vegghengt salerni, walk-in sturta, gólfhiti,  hægt að tengja þvottavél og þurrkara. 
Stigi niður á neðri hæð:  Nýlega teppalagður og settur handlisti. 
Neðri hæð: 
Alrými:  Bjart alrými, hljóðeingrandi þiljur í lofti  Quick step harðparket á gólfi. gengið út í bakgarð úr alrými. 
Svefnherbergi I: Fataskápur,  lítið leikskot er inn af herbergi, Quick step harðparket á gólfi
Svefnherbergi II:  Fataskápur, Quick step harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi III: Rúmgóður fataskápur, sérsmíðaður rúmgafl frá GÁ, harðparket á gólfi. 
Baðherbergi:  Fallegt baðherbergi, stór innrétting og speglaskápar,  walk-in sturta, baðkar, vegg og gólfflísar. 
Þvottaherbergi:  Innrétting m/ skolvask, flísar á gólfi. 
Sér inngangur:  Harðparket á gólfi. Hægt að útbúa sér íbúð á neðri hæð. 
Bílskúr:  Tvöfaldur bílskúr sem stendur sér, rafhleðslustöð fylgir, geymsluloft yfir hluta af bílskúr  heitt og kalt vatn, þar var rekin lítil verslun en lítið mál að nýta aftur sem bílskúr. 

Undanfarin ár hefur eignin verið mikið endurnýjuð á smekklegan máta. Þar á meðal var öllu gólfefni skipt út, allri lýsingu, tenglum og frontum skipt út, settar hvítar fulningahurðir, baðherbergi og gestaherbergi tekin í gegn að öllu leiti. Einnig voru settir nýir skápar og innréttingar frá Formus á allri neðri hæðina þar á meðal forstofu, herbergi, þvottahús og baðherbergi. Erna Geirlaug arkitekt teiknaði þau rými upp og ráðlagði. Húsið var allt málað að utan sumarið 2025 og lang flestir gluggar nýlega málaðir að innan og utan. Skjal með samantekt frá eigendum fylgir með söluyfirliti. Þar er farið ítarlega yfir framkvæmdir sem hafa átt sér stað síðastliðin ár ásamt því hvað mætti huga að í endurbótum næstu árin en þó ekkert sem er aðkallandi. 
 
Ákaflega falleg eign sem vert er að skoða - samantekt 
4–5 svefnherbergi og jafnvel möguleiki á fleirum
Bjart alrými með mikilli lofthæð
Tvö baðherbergi
Tveir inngangar, á efri hæð og sérinngangur á jarðhæð – möguleiki á aukaíbúð
Tvöfaldur bílskúr með rafmagni og hita
Afgirt verönd/garður er fyrir framan húsið og góður bakgarður afgirtur með runnum og hellulögð verönd aftan við hús.  
Frábær staðsetning nálægt skólum, þjónustu og útivistarsvæðum

 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea lgf. í síma 695-3502, sms@remax.is
 
Ert þú í  söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ?  og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína  verðmat  er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig,  vertu í sambandi við mig netf. sms@remax.is  eða sími 695-3502 
Viltu verðmat á þína eign   smelltu hé

Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.  
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Byggt 1992
4.2 m2
Fasteignanúmer
2045862
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
17.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Opið hús:02. apríl kl 17:00-17:30
Image
Opna eign
Ljárskógar 2
109 Reykjavík
224.3 m2
Einbýlishús með aukaíbúð
825
824 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hverafold 41
112 Reykjavík
252.8 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
914
742 þ.kr./m2
187.500.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús á tveimur hæðum
524
682 þ.kr./m2
163.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Lambasel 44
109 Reykjavík
240.6 m2
Einbýlishús
624
727 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin