Fallegt og vel skipulagt 5-6 herbergja endaraðhús með tvöföldum bílskúr við Brúarás í Árbæ.Sigrún Matthea og RE/MAX kynna glæsilegt og mikið endurnýjað endaraðhús á tveimur hæðum með rislofti og sérstandandi tvöföldum bílskúr. Um er að ræða einstaklega góða fjölskyldueign á rólegum og grónum stað í Árbæ. Skjólgóð verönd er á milli húss og bílskúrs og hellulögð verönd í bakgarði. Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin 208 m² hús á tveimur hæðum með geymslulofti og bílskúr 42 m² samtals 250 m². Nánari upplýsingar veitir Sigrún Matthea 695-3502 eða á netf: sms@remax.is
Viltu sækja söluyfirlit strax Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi það er stutt er í leik og grunnskóla íþróttaaðstöðu sundlaug, verslanir og ýmsa aðra þjónustu. Frábærar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenninu stutt að njóta útivistar í náttúruperlum í Elliðaárdal og Heiðmörk.Eignin skiptist í forstofur, eldhús / borðstofu / stofu í björtu alrými með mikilli lofthæð, fjögur svefnherbergi, leikherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottaherbergi.
Tveir inngangar, á efri hæð og sérinngangur á jarðhæð.Tvöfaldur bílskúr.
Afgirtur timburpallur og hellulögð verönd er fyrir framan húsið og góður bakgarður afgirtur með runnum og hellulagðri verönd aftan við hús. Efri hæð: Anddyri: Fataskápur flísar á gólfi.
Eldhús / borðstofa / stofa: Eldhúsinnrétting endurnýjuð að hluta. Bjart alrými mjög hátt til lofts Quick step harðparket á gólfi. Útgengt úr stofu út á svalir og þaðan niður í bakgarð.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi góðir fataskápar Quick step harðparket á gólfi.
Leikherbergi / sjónvarpsrými: Innbyggður lítill fataskápur, Quick step harðparket á gólfi, úr þessu rými er fellistigi upp á mjög rúmgott geymsluloft.
Baðherbergi: Lítil innrétting m/ handlaug, vegghengt salerni, walk-in sturta, gólfhiti, hægt að tengja þvottavél og þurrkara.
Stigi niður á neðri hæð: Nýlega teppalagður og settur handlisti.
Neðri hæð: Alrými: Bjart alrými, hljóðeingrandi þiljur í lofti Quick step harðparket á gólfi. gengið út í bakgarð úr alrými.
Svefnherbergi I: Fataskápur, lítið leikskot er inn af herbergi, Quick step harðparket á gólfi
Svefnherbergi II: Fataskápur, Quick step harðparket á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgóður fataskápur, sérsmíðaður rúmgafl frá GÁ, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, stór innrétting og speglaskápar, walk-in sturta, baðkar, vegg og gólfflísar.
Þvottaherbergi: Innrétting m/ skolvask, flísar á gólfi.
Sér inngangur: Harðparket á gólfi. Hægt að útbúa sér íbúð á neðri hæð.
Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr sem stendur sér, rafhleðslustöð fylgir, geymsluloft yfir hluta af bílskúr heitt og kalt vatn, þar var rekin lítil verslun en lítið mál að nýta aftur sem bílskúr.
Undanfarin ár hefur eignin verið mikið endurnýjuð á smekklegan máta. Þar á meðal var öllu gólfefni skipt út, allri lýsingu, tenglum og frontum skipt út, settar hvítar fulningahurðir, baðherbergi og gestaherbergi tekin í gegn að öllu leiti. Einnig voru settir nýir skápar og innréttingar frá Formus á allri neðri hæðina þar á meðal forstofu, herbergi, þvottahús og baðherbergi. Erna Geirlaug arkitekt teiknaði þau rými upp og ráðlagði. Húsið var allt málað að utan sumarið 2025 og lang flestir gluggar nýlega málaðir að innan og utan. Skjal með samantekt frá eigendum fylgir með söluyfirliti. Þar er farið ítarlega yfir framkvæmdir sem hafa átt sér stað síðastliðin ár ásamt því hvað mætti huga að í endurbótum næstu árin en þó ekkert sem er aðkallandi. Ákaflega falleg eign sem vert er að skoða - samantekt 4–5 svefnherbergi og jafnvel möguleiki á fleirum
Bjart alrými með mikilli lofthæð
Tvö baðherbergi
Tveir inngangar, á efri hæð og sérinngangur á jarðhæð – möguleiki á aukaíbúð
Tvöfaldur bílskúr með rafmagni og hita
Afgirt verönd/garður er fyrir framan húsið og góður bakgarður afgirtur með runnum og hellulögð verönd aftan við hús.
Frábær staðsetning nálægt skólum, þjónustu og útivistarsvæðum Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea lgf. í síma 695-3502, sms@remax.is Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ? og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, vertu í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502
Viltu verðmat á þína eign smelltu hér
Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.