RE/MAX Ísland logo
Skráð 20. okt. 2024
Söluyfirlit

Hverfisgata 49

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
102.4 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
78.500.000 kr.
Brunabótamat
49.650.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1949
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2003315
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Þörf á að yfirfara/skipta út að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja 102,4 fm. íbúð á þriðju hæð í góðu fjölbýlishúsi á vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur.   Íbúðin er skráð 95,4 fm. og skiptist í forstofu, eldhús sem er opið til borðstofu og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi.  Sérgeymsla er staðsett í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Húsið er reisulegt steypt hús byggt 1949, Sigvaldi Thordarson arkitekt teiknaði húsið.   

**BÓKIÐ EINKASKOÐUN**


Björt og falleg eign í hjarta borgarinnar sem vert er að skoða, töluvert er búið að endurnýja á síðustu árum. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir,  einnig fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna.  

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR


Nánari lýsing:  
Forstofa er flísalögð með svörtum Mustang flísum og með fataskápum. Bjart beykiparket er á svefnherbergjum og alrýmum íbúðar.
Eldhús er opið til borðstofu og stofu með nýlegum rafrækjum (2015-2016)  þ.e. helluborði, bökunarofni og gufugleypi. Góðar innréttingar og flísað er á milli skápa. 
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými, parket á gólfum. Stórir gluggar til suðurs með útsýni yfir Hverfisgötu.
Svefnherbergin eru þrjú.  Hjónaherbergi er einstaklega rúmgott og með stórum fataskápum. Minni svefnherbergin tvö eru einnig rúmgóð og parket á gólfum.
Baðherbergi er með innbyggðum sturtuklefa með físum og gleri, flísalagt gólf og vegg að hluta. Gott skápapláss.
Sérgeymsla er staðsett í sameign 7,0 fm. að stærð ásamt hjóla- og vagnageymslu.  Sameiginlegt þvottahús jafnframt í sameign.
Garður/lóð er sameiginlegur, snyrtileg aðkoma er að húsinu bæði fyrir framan og aftan hús en gengið er inn í húsið frá Vatnsstíg.

Töluvert er búið að endurnýja í húsinu á síðustu árum.
2024 var skipt um heitavatnslagnir í íbúð.  2017 voru skólplagnir endurnýjaðar. 2016 var geislahitunarkerfi skipt út fyrir nýtt ofnakerfi í áföngum, lauk 2016. Sameign mjög snyrtileg, sett nýtt teppi á stigagang 2021 og stigagangur málaður 2018.
Eldhús og baðherbergi endurnýjað 2015-2016, ma. sett vönduð raftæki. Á baðherbergi var flísalagt, ný blöndunartæki og vegghengt salerni. Ofna og neysluvatnslagnir endurnýjaðar og rafmagn að hluta.  Skipt um lagnir úti og í grunni, frárennslislagnir inni voru fóðraðar.
2012-2013 var húsið sprunguviðgert og málað. Nýleg rafmagnstafla í sameign.

Heildarstaða hússjóðs er 4.118.589 kr. og húsgjöld íbúðar 26.695 kr. á mánuði.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Sólvallagata 81
101 Reykjavík
79.7 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
211
940 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Opið hús:02. ágúst kl 15:00-16:00
Image
Opna eign
Garðastræti 13A
101 Reykjavík
90.8 m2
Fjölbýlishús
211
957 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kolagata 1
101 Reykjavík
124.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
423
1,000 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hverfisgata 96
101 Reykjavík
114.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
956 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin