RE/MAX: kynnir í einkasölu fallega íbúð með sérinngangi á annari hæð við Ljósakur 6 í Garðabæ. Eignin er skráð samtals 169 fm og skiptist í 103,2 fm íbúð, 12,4 fm sérgeymslu í sameign og 53,4 fm geymslu sem innréttuð er sem íbúð. Í íbúðinni er forstofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými, þaðan er gengið út á svalir.
Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Páll Guðmundsson lögg,fasteignasali í síma 861-9300 pallb@remax.is og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali í síma 6238747 eða ulfar@remax.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Snyrtilegt anddyri með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa: Opin og björt stofa með parketi á gólfi, úr stofu er gengið út á suðvestur svalir. Stórir gólfsíðir gluggar með góðu útsýni.
Eldhús: Stórt opið eldhús með góðu skápaplássi og eyju með morgunverðarborði, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi : Rúmgott barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Falleg innrétting, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Þvottahús: Er innaf baðherbergi. Snyrtileg innrétting með vaski. Flísar á gólfi.
Í sameign er góð geymsla skráð 12,4 fm
Íbúðin í kjallara er skráð sem geymsla, en hún skiptist í eldhús og stofu í opnu rými, parket á gólfi. Innaf stofu er herbergi með fataskápum, parket á gólfi. Baðherbergi með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi .
Húsið mjög vel staðsett á barnvænum stað. Leikskóli í götunni.
um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.