Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð, björt og flott þriggja herbergja 89,6 fm. íbúð á fjórðu hæð í fimm hæða lyftufjölbýli við Holtsveg 57, 210 Garðabæ með 17,7 fm svalir, frábært, flott og gott útsýni. Gólfhiti er á allri íbúðinni og góð lofthæð.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isNánar um íbúð 0404: Eignin er þriggja herbergja íbúð á 4. hæð hússins, merkt 0404, íbúð er með geymsluskáp innan íbúðar. Eigninni tilheyra svalir á 4. hæð, merktar 0411, stærð 17,7 fm. Birt stærð séreignar er 89,6 fm.
Innréttingar eru frá HBH. Innihurðir eru yfirfelldar og rennihurð innfelld í vegg. Borðplötur í eldhúsi og inn á baðherbergi eru með 30mm plastlagðri borðplötu. Blöndunartæki frá Mora. Í eldhúsi er helluborð, fjölvirkur bakarofn með blæstri. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Tæki eru frá Electrolux. Á baðherbergi er upphengt salerni. Sturta eru flísalögð og með gler á einni hlið. Blöndunartæki eru einnar handar í borði og sturtutæki á baðherbergi er frá Mora. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi með tengingar fyrir þvottavél, innréttingar eru með þeim hætti að þvottavél/þurrkara er lyft upp í vinnuhæð með skúffur fyrir neðan. Parket frá Ebson
Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma
661-6056 / gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-