RE/MAX Ísland logo
Opið hús:14. júní kl 14:00-14:30
Skráð 11. júní 2026
Söluyfirlit

Langalína 2B

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
169.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
173.000.000 kr.
Fermetraverð
1.022.459 kr./m2
Fasteignamat
130.150.000 kr.
Brunabótamat
103.220.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2008
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2300588
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar yfirbyggðar stórar svalir með svalskjól.
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Skv. yfirlýsingu húsfélags sem dagsett er þann 9. júni 2026, þá kemur eftirfarandi þar fram: 
Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags. Á aðalfundi 2025 var stjórn meðal annars veitt heimild til að afla tilboða í að mála geymsluganga, anddyri og sorpskýli. Sjá nánar í aðalfundargerð 06.03.25. Á aðalfundi 2026 var stjórn falið að kanna með endurnýjun á dyrasímum. Stjórn var einnig falið að kanna með að láta mála gólf í hjólageymslum og geymslugöngum, leka við hliðin á sorpgeymslu í L2B og hreinsun á lofttúðum og bæta loftræstingu í sorpgeymslu. Sjá nánar aðalfundargerð  17.03.2026
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Björt og vel skipulögð 169,2 fm.  fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýli í Sjálandi við Langalínu 2B, 210 Garðabæ ásamt tveimur bílastæðum í bílageymslu. 

Íbúðin er með mikilli lofthæð, gólfsíðum gluggum, gólfhita og vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum sem skapa fágað og samræmt yfirbragð. Tvennar stórar yfirbyggðar svalir með svalaskjóli. 

Í eigninni eru þrjú svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með sér fataherbergi, auk rúmgóðs alrýmis þar sem stofa, borðstofa og eldhús tengjast í opnu og björtu flæði. Glæsilegt baðherbergi og sér gestasnyrting.

Allar innréttingar eru vandaðar og sérsmíðaðar, og í eldhúsi eru tæki í háum gæðaflokki. Dimmer er á öllum ljósum og frágangur íbúðarinnar ber með sér vandaða heildarhönnun.

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D


Nánari lýsing: 
Eignin er öll á einni hæð og einkennist af opnu flæði, góðri rýmishæð og miklu dagsljósi. Komið er inn í rúmgott og bjart anddyri með fallegum, ljósum flísum á gólfi. Innviðir íbúðarinnar eru vel skipulagðir og frá anddyri er gott aðgengi inn í alrými og svefnálmu. Stofa, borðstofa og eldhús mynda stórt og bjart alrými með gólfsíðum gluggum og góðri lofthæð. Rýmið nýtur einstaklega góðs dagsljóss og opið flæði gerir það bæði vistlegt og skemmtilegt til samveru og móttöku fjölskyldu og vina. Stofan er björt og hlýleg stofa með ljósum flísum á gólfi og stórum gluggum sem hleypa vel inn birtu. Úr stofu er útgengi á yfirbyggðar svalir sem auka notagildi rýmisins. Borðstofa er í beinu samhengi við eldhús og stofu og nýtir vel opið skipulag íbúðarinnar. Rýmið er rúmgott og hentar vel bæði daglegri notkun og veisluhöldum. Sérlega vandað og sérsmíðað Brúnás-eldhús með ljósum innréttingum, eyju og stein á borðum. Þar eru Miele spanhelluborð, tveir Miele ofnar, veisluofn og gufuofn, stór tvöfaldur General Electric ísskápur og Fisher & Paykel Dish Drawer uppþvottavél. Vaskur er extra stór og blöndunartæki frá Philippe Starck. Eigninni fylgja tvennar yfirbyggðar svalir, stórar yfirbyggðar svalir sem tengjast stofu og eldhúsi. Þar eru sömu flísar og inni í íbúðinni sem styrkir samræmi í heildarútliti og skapar eftirsóknarvert samspil inni- og útisvæðis. Aðrar yfirbyggðar svalir við svefnherbergi eru með gráum flísum og útgengi frá báðum svefnherbergjum. Svalirnar eru með svalaskjóli og bjóða upp á gott útsýni yfir nánasta umhverfi. Hjónaherbergið er rúmgott með góðri birtu og útgengi á svalir. Inn af herberginu er sér fataherbergi með góðu skipulagi og miklu geymsluplássi. Vel skipulagt fataherbergi með hillum og skápaplássi sem nýtir rýmið vel. Í geymslu eru hillur frá Ísold sem undirstrika praktíska nýtingu. Svefnherbergi II er bjart og rúmgott herbergi með skápum og útgengi á svalir. Vel nýtanlegt sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnurými. Svefnherbergi III er einnig rúmgott og bjart herbergi með hlýlegu yfirbragði og góðu skápaplássi. Hentar vel sem svefnherbergi eða heimaskrifstofa. Stórt og sérlega vandað baðherbergi með ljósum flísum, innfelldri lýsingu og óbeinni lýsingu. Þar er stór sturta með glerafmörkun, handklæðaofn, steinn á borði og vönduð blöndunartæki frá Hansgrohe og Axor. Gestasalerni er með handlaug og upphengdu salerni. Sérinnréttað þvottahús með góðu skápaplássi og snyrtilegri og flotta uppsetningu. Auk þess fylgir með eigninni stór og björt bílageymsla með mikilli lofthæð. Íbúðinni fylgja tvö merkt stæði, B31 og B59, og búið er að leggja fyrir rafhleðslukerfi án þess að hleðslutæki hafi verið sett upp. Íbúðinni fylgir einnig 8 fm. geymsla á geymslugangi í kjallara. Þar eru einnig góðar sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur.

Frábær staðsetning, þar sem íbúðin er í vinsælu og eftirsóknarverðu umhverfi í Sjálandi í Garðabæ, þar sem Hnoðraholtslækur rennur hjá húsinu og setur svip á nánasta umhverfi. Staðsetningin er róleg en jafnframt vel tengd þjónustu og helstu samgöngum.

Helsta viðhald innan íbúðar undanfarið, er að grohe krani á salerni endurnýjaður. Viðhald á gólfhitakerfi framkvæmt fyrir rúmu ári, ma. skipt um dælu og kerfið yfirfarið. Alrými var málað fyrir tveimur árum, loft og veggir, einnig bæði salerni. Skipt um þétti í ísskáp á síðasta ári.

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.










 
Byggt 2008
Fasteignanúmer
2300588
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
31
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.560.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2008
Fasteignanúmer
2300588
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
59
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.560.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Miðbraut 24
170 Seltjarnarnes
197.9 m2
Hæð í þríbýlishúsi
422
823 þ.kr./m2
162.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Lyngholt 2
225 Garðabær
224.2 m2
Einbýlishús á einni hæð
524
789 þ.kr./m2
176.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Keldugata 6
210 Garðabær
225.3 m2
Raðhús á pöllum
624
754 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Keldugata 4
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús á pöllum
725
779 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin