Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4ra herb. enda íbúð með sér inngangi að Þórðarsveig 16 í Reykjavík. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir. Út frá stofu eru S-svalir. Þvottahús er innan íbúðar. Fínir hjóla- og göngustígar eru um hverfið til að komast m.a. í leik- og grunnskóla. Einnig er stutt að fara í sundlaug og útivistarsvæði.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 96 m2. Stæði í bílageymslu er ekki inni í fermetrafjölda eignar.*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA
**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!
Smelltu hér og þú færð söluyfirlit straxNánari lýsing:
Forstofa er inn af utanáliggjandi stigagangi. Gengið er upp eina hæð frá bílastæðum ofan á bílakjallara. Tvöfaldur Eikarskápur í rúmgóðri flísalagðri forstofu.
Herbergi I er inn af forstofu. Tvöfaldur fataskápur upp í loft. Gluggi snýr út á gafl til vesturs.
Herbergi II er inn af holi. Tvöfaldur fataskápur upp í loft. Gluggi snýr út á svalargang til norðurs.
Herbergi III er inn af stofurými. Fjórfaldur viðarfataskápur upp í loft. Gluggi vísar út í garð til suðurs.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Stofurýmið er rúmgott og út frá stofu eru svalir sem vísa til suðurs.
Eldhús er með "L" laga eikarinnréttingu. Á milli efri og neðri skápa eru mósaíkflísar. Ofn, helluborð og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með handlaug. Sturtuklefi, hvítur handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús er innan íbúðar. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur. Gráar gólffísar.
Bílageymsla er lokuð. Viðkomandi íbúð er með stæði merkt íbúðinni. Búið er að setja rafmagn í bílakjallara og fylgir rafmagnshleðslustöð við stæðið.
Geymsla er sér, staðsett í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á 1. hæð.
Gólfefni er parket (frá árinu 2019) og flæðir það um íbúðina án þröskulda. Á baðherbergi, þvottahúsi og frostofu eru gólfflísar.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-