RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð á 2.hæð í góðu húsi við Stigahlíð í Reykjavík. Gengið er upp 1 ½ hæð að íbúðinni frá aðalinngangi hússins. Frá stofunni er gengið út á skjólgóðar suðursvalir sem snúa inn í rólegan garð.- Búið er að endurnýja alla glugga (gler og gluggaramma)
- yfirfara þak og endurnýjað járn þar sem þess var þörf
- sameign máluð og teppalögð svo eitthvað sé nefnt
- Í eigninni er búið að endurnýja eldhúsinnréttingu, öll gólfefni og hluta til baðherbergi
3D linkur hér - (með og án húsgagna) Nánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Með fallegri hvítri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi. Góður gluggi hleypir skemmtilegri birtu inn í rýmið.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi. Útgengt á skjólgóðar suðursvalir. Þar sem íbúðin er endaíbúð þá nær hún fallegum glugga á gaflinn sem hleypir auka birtu inn í rýmið.
Hjónaherbergi: Fataskápar og parketi á gólfi.
Herbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er endurnýjað að miklu leiti. Nýlega var sett upphengt salerni og vatnskassi innbyggður, skipt um vask, flísar á gólfi og á hluta af veggjum. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Geymsla: Er 7,8m² í sameign.
Þvottahús: Er í sameign ásamt þurrkherbergi og hjóla/vagnageymslu.
Húsið lítur vel út og hefur verið í reglulegu viðhaldi undanfarin ár:Árið 2009 var gert við sprungur á suður- og vesturhlið. Einnig var skipt um alla glugga og svalahurð á suðurhlið.
Árið 2017 var eldhús endurnýjað, skipt um öll gólfefni og nýtt rafmagn var sett í alla íbúðina.
2019 var skipt um alla glugga og gler á norðurhlið og gafli. Þak var yfirfarið og lagfært, skipt um bárujárn að hluta og settar nýjar rennur. Einnig var farið í múrviðgerðir og upphækkun sett á svalahandrið. Búið er að greiða fyrir þessar framkvæmdir.
Árið 2017 var eldhús endurnýjað, skipt um öll gólfefni og nýtt rafmagn var sett í alla íbúðina.
Sameignin er snyrtileg og var nýlega máluð og teppalögð.
Snjóbræðslukerfi í stétt.
Íbúðin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi miðsvæðis í borginni. Gott göngufæri við skóla, verslanir, þjónustu og útivistarsvæði í Öskjuhlíð og Klambratúni. Leikskólinn Bjartahlíð og Stakkaborg eru í göngufjarlægð.
Átta íbúðir eru í Stigahlíð 30 og er eignin merkt 02-02 og með fastanúmerið 203-1035.
Í húsinu er rekið húsfélag fyrir stigaganginn og auk þess er húsfélag fyrir stigagangana í Stigahlíð 30-36 í umsjón Rekstarumsjón ehf.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is