Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Einstaklega bjarta, rúmgóða og vel skipulagða neðri sérhæð í tvíbýli með sérinngangi, bílskúr og L-laga svölum til suðurs og vesturs með opnu og góðu aðgengi að grónum garði.
Um er að ræða fallega fjölskyldueign á einstaklega skjólgóðum stað í barnvænu hverfi í Grafarvogi þar sem stutt er bæði í skóla og tómstundir.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 152,8 fm sem skiptist í íbúðarrými 131,1 fm og bílskúr 21,7 fm. Húsið er byggt árið 1985.Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er kr. 102.550.000.-Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og var þakið málað sumarið 2026 en gluggar og útihurðir sumarið 2025SMELLTU HÉR til að sækja öll gögn um eigninaAllar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaInnan íbúðar eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, rúmgott eldhús með borðkróki, stofa og borðstofa í opnu samliggjandi rými, sjónvarpshol, þvottahús, búr og forstofa. Eigninni fylgir bílskúr auk aðgangs að sameiginlegri geymslu.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Sjónvarpshol er í miðrými eignarinnar og tengir saman rými íbúðarinnar. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt er úr borðstofu á opnar L-laga svalir sem snúa til suðurs og vesturs og er gengið niður í gróinn garð af opnum svölunum.
Eldhús er einstaklega rúmgott með góðri sérsmíðaðri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Granít er á borðplötum og í gluggakistu. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu og korkur á gólfi.
Þvottahús og búr eru innaf eldhúsi og er þeim skipt í tvö rými. Það er þó hægt að opna það í í eitt rými. Útgengt er úr þvottahúsi. Vaskur er í þvottahúsinu og er korkur á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú.Herbergi I er hjónaherbergið sem er rúmgott með góðum sérsmíðuðum fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi II og III eru bæði í góðri stærð með parketi á gólfi og er fataskápur í minna herberginu.
Baðherbergi er með bæði baðkari og sturtu (steyptri), innréttingu undir og við handlaug, flísar á gólfi og veggjum. Sturtan var endurnýjuð fyrir um fimm árum og var þá skipt um blöndunartæki og sturtan flísalögð.
Bílskúr er skráður 21,7 fm og er með rafdrifinni flekahurð. Heitt og kalt vatn er í bílskúr og er innkeyrslan steypt.
Garður, lóð og sameign:Garðurinn er fallegur og gróinn og er í óskiptri sameign beggja íbúða, til helminga sbr eignaskiptasamning (50/50). Gott aðgengi er að garðinum af svölum íbúðarinnar sem snúa til suðurs og vesturs.
Hiti er í tröppum og hellulögðum gangvegi norðan megin við húsið. Auka bílastæði er á lóðinni og er það í sameign íbúðanna sbr. eignaskiptasamning.
Sameiginleg geymsla 11,5 fm: er austan megin við húsið og nýtist hún vel til geymslu á reiðhjólum og garðáhöldum. Inntök í húsið eru þar.
Þak var málað 2026 en gluggar og útihurðar voru málaðar 2025Um er að ræða einstaklega fallega og rúmgóða fjölskyldueign á skjólgóðum stað í Foldahverfi í Grafarvogi. Hverfið er einstaklega barnvænt og eru bæði grunnskóli og íþróttamiðstöðin í Dalhúsum í göngufæri. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja meðfram voginum þar sem njóta má nálægðar við hafið og náttúruna. Eignin er góður kostur fyrir þá sem kjósa að búa í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi í nálægð við náttúruna en þó í borginni.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar) af heildarfasteignamati.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
- Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
- Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m/vsk.