RE/MAX Ísland logo
Skráð 26. nóv. 2026
Söluyfirlit

Logafold 51

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
152.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
686.518 kr./m2
Fasteignamat
101.000.000 kr.
Brunabótamat
77.730.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2042723
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gler var endurnýjað 2012. Gluggar málaðir 2025 - en sunnanmegin orðnir óþéttir í miklum vatnsveðrum
Þak
Upprunalegt-málað 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Lóð
50
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Gluggar á suðurhlið er orðnir lélegir þá sérstaklega í suðaustan hvassri úrkomu. Sprunga í flís í forstofunni.
Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Einstaklega bjarta, rúmgóða og vel skipulagða neðri sérhæð í tvíbýli með sérinngangi, bílskúr og L-laga svölum til suðurs og vesturs með opnu og góðu aðgengi að grónum garði. 
Um er að ræða fallega fjölskyldueign á einstaklega skjólgóðum stað í barnvænu hverfi í Grafarvogi þar sem stutt er bæði í skóla og tómstundir.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 152,8 fm sem skiptist í íbúðarrými 131,1 fm og bílskúr 21,7 fm. Húsið er byggt árið 1985.
Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er kr. 102.550.000.-
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og var þakið málað sumarið 2026 en gluggar og útihurðir sumarið 2025

SMELLTU HÉR til að sækja öll gögn um eignina

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

  SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum

  SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna


Innan íbúðar eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, rúmgott eldhús með borðkróki, stofa og borðstofa í opnu samliggjandi rými, sjónvarpshol, þvottahús, búr og forstofa. Eigninni fylgir bílskúr auk aðgangs að sameiginlegri geymslu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Sjónvarpshol er í miðrými eignarinnar og tengir saman rými íbúðarinnar. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt er úr borðstofu á opnar L-laga svalir sem snúa til suðurs og vesturs og er gengið niður í gróinn garð af opnum svölunum.
Eldhús er einstaklega rúmgott með góðri sérsmíðaðri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Granít er á borðplötum og í gluggakistu. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu og korkur á gólfi.
Þvottahús og búr eru innaf eldhúsi og er þeim skipt í tvö rými. Það er þó hægt að opna það í í eitt rými. Útgengt er úr þvottahúsi. Vaskur er í þvottahúsinu og er korkur á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú.
Herbergi I er hjónaherbergið sem er rúmgott með góðum sérsmíðuðum fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi II og III eru bæði í góðri stærð með parketi á gólfi og er fataskápur í minna herberginu.
Baðherbergi er með bæði baðkari og sturtu (steyptri), innréttingu undir og við handlaug, flísar á gólfi og veggjum. Sturtan var endurnýjuð fyrir um fimm árum og var þá skipt um blöndunartæki og sturtan flísalögð.
Bílskúr er skráður 21,7 fm og er með rafdrifinni flekahurð. Heitt og kalt vatn er í bílskúr og er innkeyrslan steypt.
Garður, lóð og sameign:
Garðurinn er fallegur og gróinn og er í óskiptri sameign beggja íbúða, til helminga sbr eignaskiptasamning (50/50). Gott aðgengi er að garðinum af svölum íbúðarinnar sem snúa til suðurs og vesturs.
Hiti er í tröppum og hellulögðum gangvegi norðan megin við húsið. Auka bílastæði er á lóðinni og er það í sameign íbúðanna sbr. eignaskiptasamning.
Sameiginleg geymsla 11,5 fm: er austan megin við húsið og nýtist hún vel til geymslu á reiðhjólum og garðáhöldum. Inntök í húsið eru þar.
Þak var málað 2026 en gluggar og útihurðar voru málaðar 2025
Um er að ræða einstaklega fallega og rúmgóða fjölskyldueign á skjólgóðum stað í Foldahverfi í Grafarvogi. Hverfið er einstaklega barnvænt og eru bæði grunnskóli og íþróttamiðstöðin í Dalhúsum í göngufæri. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja meðfram voginum þar sem njóta má nálægðar við hafið og náttúruna. Eignin er góður kostur fyrir þá sem kjósa að búa í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi í nálægð við náttúruna en þó í borginni.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar) af heildarfasteignamati.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
- Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
- Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m/vsk.
Byggt 1985
21.7 m2
Fasteignanúmer
2042723
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.180.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Baughús 10
112 Reykjavík
139 m2
Tvíbýli
514
719 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dugguvogur 1 - Íbúð 207
104 Reykjavík
134,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
514
782 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Jöfursbás Þaksvalir 3B
112 Reykjavík
126,4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
423
909 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Jöfursbás Þaksvalir 5D
112 Reykjavík
115,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
997 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin