Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4-5 herb. íbúð í þríbýli að Digranesvegi 52 í Kópavogi. Sér inngangur er inn í íbúð og þess utan eru tvennar svalahurðir út í stærðarinnar garð sem snýr til suðurs. Auka herbergi hefur verið útbúið í hluta af stofu sem og skráðri geymslu inni á svefnherbergisgangi, þannig að svefnherbergin í dag eru fjögur. Innan íbúðar er þvottahús og geymsla/búr. Handan götunnar er leik-, grunn- og menntaskóli. 30 km. hámarkshraði er í götunni og þar eru gangbrautir og hraðahindranir. Í nágrenninu er einnig sundlaug, verslanir og ýmis þjónusta.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og búr/geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 92,3 m2.**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!*VINSAMLEGA SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í OPIÐ HÚS LAUGARD. 7. FEBRÚAR Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:
Forstofa er inn um sér inngang inn af garði sunnan við hús. Innan íbúðar eru ljósgráar gólfflísar sem flæða inn á svefnherbergisgang og inn í eldhús. Forstofuskápur er með rennihurðum.
Eldhús er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru gráar veggplötur. Stæði er fyrir ísskáp og uppþvottavél. Veggfest eldhúsborð yfir háum eldhússtólum.
Stofa björt með gluggum á tvo vegu. Svalarhurð er út í garð. Parket á gólfi.
Hol og herbergisgangur er með hvítum háglans fataskáp. Gráar gólfflísar.
Herbergi I er inni á svefnherbergisgangi eins og tvö önnur og er þetta herbergi nýtt í dag sem skrifstofa og fataherbergi. Parket á gólfi og gluggi snýr út í garð til suðurs.
Herbergi II er rúmgott. Parket á gólfi og gluggi vísar út í garð til suðurs.
Herbergi III var stækkað á kostnað herbergis við hliðina. Þetta herbergi er merkt sem geymsla á aðaluppdráttum. Hvítur tvöfaldur fataskápur. Parket á gólfi. Gluggi snýr út í garð til vesturs.
Herbergi IV er hluti af stofunni. Léttur veggur er ofan á parketi og einfalt að stækka aftur stofuna á ný. Út frá herbergi er svalarhurð út í garð til suðurs.
Baðherbergi var gert upp af fyrri eiganda. Flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum flísum. Baðkar með sturtugleri, upphengt salerni, hvít háglans skúffueining undir handlaug, veggfestur speglaskápur með ljósi og veggfestur ílangur skápur.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Niðurfall í gólfi og málað gólf. Borð yfir þvottavél og þurrkara, hillur og skápur.
Búr/geymsla er inn af þvottahúsi. Hillur og rafmagnstafla íbúðar á vegg.
Garður er gróinn og einstaklega stór til suðurs þar sem útsýni er til Bláfjalla. Lóðin er 1.018 m2.
KópavogsskóliLeikskólinn KópahvollLeikskólinn LækurMenntaskólinn í KópavogiKópavogslaugKópavogskirkja-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-