RE/MAX Ísland logo
Opið hús:07. feb. kl 14:00-15:00
Skráð 3. feb. 2026
Söluyfirlit

Digranesvegur 52

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
92.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
800.650 kr./m2
Fasteignamat
64.150.000 kr.
Brunabótamat
49.300.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2059597
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Frárennslislagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Verið skipt um að hluta í húsinu, einnig svalahurðar.
Þak
Þakjárn endurnýjað 2024.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4-5 herb. íbúð í þríbýli að Digranesvegi 52 í Kópavogi. Sér inngangur er inn í íbúð og þess utan eru tvennar svalahurðir út í stærðarinnar garð sem snýr til suðurs. Auka herbergi hefur verið útbúið í hluta af stofu sem og skráðri geymslu inni á svefnherbergisgangi, þannig að svefnherbergin í dag eru fjögur. Innan íbúðar er þvottahús og geymsla/búr. Handan götunnar er leik-, grunn- og menntaskóli. 30 km. hámarkshraði er í götunni og þar eru gangbrautir og hraðahindranir. Í nágrenninu er einnig sundlaug, verslanir og ýmis þjónusta.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 


Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og búr/geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 92,3 m2.

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*VINSAMLEGA SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í OPIÐ HÚS LAUGARD. 7. FEBRÚAR
 
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn um sér inngang inn af garði sunnan við hús. Innan íbúðar eru ljósgráar gólfflísar sem flæða inn á svefnherbergisgang og inn í eldhús. Forstofuskápur er með rennihurðum.
Eldhús er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru gráar veggplötur. Stæði er fyrir ísskáp og uppþvottavél. Veggfest eldhúsborð yfir háum eldhússtólum.
Stofa björt með gluggum á tvo vegu. Svalarhurð er út í garð. Parket á gólfi.
Hol og herbergisgangur er með hvítum háglans fataskáp. Gráar gólfflísar.
Herbergi I er inni á svefnherbergisgangi eins og tvö önnur og er þetta herbergi nýtt í dag sem skrifstofa og fataherbergi. Parket á gólfi og gluggi snýr út í garð til suðurs.
Herbergi II er rúmgott. Parket á gólfi og gluggi vísar út í garð til suðurs.
Herbergi III var stækkað á kostnað herbergis við hliðina. Þetta herbergi er merkt sem geymsla á aðaluppdráttum. Hvítur tvöfaldur fataskápur. Parket á gólfi. Gluggi snýr út í garð til vesturs.
Herbergi IV er hluti af stofunni. Léttur veggur er ofan á parketi og einfalt að stækka aftur stofuna á ný. Út frá herbergi er svalarhurð út í garð til suðurs.
Baðherbergi var gert upp af fyrri eiganda. Flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum flísum. Baðkar með sturtugleri, upphengt salerni, hvít háglans skúffueining undir handlaug, veggfestur speglaskápur með ljósi og veggfestur ílangur skápur.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Niðurfall í gólfi og málað gólf. Borð yfir þvottavél og þurrkara, hillur og skápur. 
Búr/geymsla er inn af þvottahúsi. Hillur og rafmagnstafla íbúðar á vegg.
Garður er gróinn og einstaklega stór til suðurs þar sem útsýni er til Bláfjalla. Lóðin er 1.018 m2. 

Kópavogsskóli
Leikskólinn Kópahvoll
Leikskólinn Lækur
Menntaskólinn í Kópavogi
Kópavogslaug
Kópavogskirkja

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
71.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1,081 þ.kr./m2
77.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
68.7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1,119 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
71.4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1,063 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
78.9 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
212
911 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin