Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 5 herbergja endaíbúð á tveimur hæðum að Keilugranda 10 í Vesturbæ Reykjavíkur. Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Húsið er lágreist og stendur við Grandaskóla og íþróttasvæði KR. Svalir eru til suðurs út frá stofu og vísa ekki að öðru fjölbýli. Í bílageymslu er búið að leggja fyrir hleðslu rafmagnsbíla. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig á íþróttasvæði KR, sundlaug, niður að sjávarsíðu o.fl. Frábær staðsetning.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur herbergi, tvö baðherbergi og geymslu. Þvottahús er í sameign og tengi til staðar í íbúð. Stæði í bílageymslu er inni í heildarfermetrum.
Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem hér segir; 141,5 m2 í heildina. Íbúðin er 109,4 m2, geymslan 5,3 m2 og bílageymslan telur 26,8 m2.**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !*SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN MIÐVIKUD. 21. MAÍ ! Nánari lýsing neðri hæðar:Forstofa er inn af snyrtilegum stigagangi. Innan íbúðar er innfelldur tvöfaldur fataskápur. Drapplitaðar Gólfflísar.
Baðherbergi er rúmgott með baðkari. Innrétting undir handlaug, veggfestur skápaeining með spegli og lýsingu. Á öðrum vegg er stór skápur. Ljósar gólf- og veggflísar.
Stofa er með gluggum á tvo vegu. Út frá stofu er útgengi út á opnar suðursvalir með útsýni til fjalla
. Parket á gólfi stofu. Í einum enda stofurýmis er hringstigi upp á efri hæð íbúðar.
Eldhús er með innréttingu á þremur veggjum. Gluggar eru á tvo vegu og útsýni að Hallgrímskirkju. Korkur á gólfi.
Herbergi I er nýtt í dag sem borðstofa. Tvöfaldur fataskápur nær upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II er inn af stofurými. Þrefaldur fataskápur nær upp í loft. Parket á gólfi.
Nánari lýsing efri hæðar:Herbergi III er stórt undir súð með þann möguleika að skipta því upp í tvö jafn stór herbergi.
Herbergi IV er nýtt sem sjónvarpsrými í dag, en er á teikningu sem herbergi.
Baðherbergi er með sturtuklefa, salerni, vaski og skáp.
Hvítar flísar eru á gólfi efri hæðar.
Þvottahús er í sameign á 1. hæð.
Geymsla er sér í sameign á 1. hæð. Gluggi í geymslu. Birt stærð 5,3 m2.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á 1. hæð.
Bílageymsla er í lokuðum bílakjallara. Búið er að leggja fyrir rafmagni þannig að hver og einn getur sett upp rafmagnshleðslustöð við sitt stæði. Einnig er aðstaða til að þvo bíla.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-