RE/MAX Ísland logo
Skráð 11. júní 2026
Söluyfirlit

Jöfursbás 11A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
55.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
51.900.000 kr.
Fermetraverð
936.823 kr./m2
Fasteignamat
53.350.000 kr.
Brunabótamat
37.400.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Vernharð S Þorleifsson
Vernharð S Þorleifsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2021
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2516209
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
FRÁBÆR KOSTUR SEM FYRSTA EIGN - LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING

Vernharð Þorleifsson lgf. kynnir  snyrtilega 55,4m2  þriggja herbergja íbúð á annari hæð í Jöfursbás 11A, íbúð 205 í húsi sem Þorpið vistfélag reisti Svansvottaðar íbúðir fyrir unga fólkið í Gufunesi.
Áhersla er lögð á hagkvæmni í byggingarkostnaði, grænar lausnir og vistvænt umhverfi. 
Forgang að kaupum á íbúðum hafa einstaklingar á aldrinum 18-40 ára. Sú kvöð fylgir eigninni að hámarks söluverð fylgir vísitölu íbúðaverðs í hverfinu.
Gæludýr eru velkomin í Jöfursbás.
Frekari upplýsingar veitir Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Eignin samanstendur af forstofu, 2 svefnherbergjum, eldhúsi/stofu, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Úgengi er úr stofu á svalir.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er með flísum á gólfi ásamt fataskáp.
Eldhús:  Er í opnu rými, góð innrétting sem nær upp í loft, span helluborð.
Stofa/borðstofa: Er í björtu og opnu rými með góðum gluggum með útgengi á svalir til suð/vesturs. 
Svefnherbergi: Er vel skipulegt með fjórföldum fataskáp, rennihurðir sem loka herberginu fara inn í vegg. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er með upphengu salerni, vaski í lítilli innréttingu og ásamt sturtuklefa. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Dúkur á gólfi.

Byggð Þorpsins-Vistfélags í Jöfursbási 11 í Gufunesi er brotin upp í þriggja til fimm hæða þyrpingu íbúðarhúsa sem hverfist um miðlægt torg og garða. Íbúðir eru samtals 137. Göngustígar í nágrenni eru tengdir inn og í gegnum í svæðið. Áhersla er á vandaða hönnun og góða rýmisnýtingu íbúðanna sem eru af fjórum gerðum; stúdíó, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Þrír stiga- og lyftukjarnar eru í íbúðarhúsunum og eru þau tengd saman um svalaganga og brýr. Byggðin hefur létt yfirbragð og er fjölbreytt í lita- og efnisvali. Um er að ræða 5 íbúðarhús, 3ja hæða í suðurhluta og 4ra hæða í vestur- og miðhluta og 5 hæða í austurhluta lóðarinnar.Staðsetning húsa innan hverfisins er ákvörðuð eftir veðurfræðilegri ráðgjöf til að mynda skjól um sólríka garða og torg.

Húsin eru verksmiðjuframleidd úr steyptum einingum sem gerðar eru innanhúss við bestu aðstæður. Burðarkerfi húsanna er byggt upp með forsteyptum svokölluðum samlokueiningum í útveggjum. Undirstöður eru forsteyptar en botnplata er staðsteypt. Innveggir á milli íbúða og íbúða og gangs eru úr forsteyptum einingum. Einangrun útveggja er forsteypt í samlokuútveggjaeiningarnar. Gluggar og hurðir eru úr timbri, formálaðir og settir í eftirá. Svalir og svalagangar eru úr forsteyptum einingum sem sitja á stálsúlum.
Sameiginleg sameign allra áfanga eru byggðir í öðrum áfanga utan hjóla- og vagnagreymslu sem er byggð samhliða fjórða áfanga.

Íbúðirnar eru á sjávarlóð nyrst í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsilegt útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar á borgarlandi meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi fyrir sunnan og ofan þessarar nýju byggðar. Megin stígar innan lóðar eru malbikaðir, við aðkomu og innganga eru stéttar hellulagðar. Lögð er áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Gert er ráð fyrir trjágróðri við megin gönguleiðir og til rýmismyndunar við dvalarsvæði. Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll og grasfleti. Torgið er við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma.

Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar til afnota fyrir íbúa til ræktunar. Þar er heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli.
Sérnotafletir verða fyrir íbúðir á jarðhæðum og á svölum á efri hæðum sem snúa í suður eða vestur. Verandir á sérafnotareitum eru með föstu hellulögðu yfirborði og heimilt er að gróðursetja runnagróður við sérafnotareiti.

Deiliskipulag fyrir Gufunes byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Jöfursbás 11B
112 Reykjavík
55.4 m2
Fjölbýlishús
312
901 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Stefnisvogur 46
104 Reykjavík
50.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1,054 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Mánagata 22
105 Reykjavík
53.6 m2
Fjölbýlishús
211
931 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hraunbær 124
110 Reykjavík
65.7 m2
Fjölbýlishús
211
790 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin