RE/MAX Ísland logo
Skráð 11. júlí 2025
Söluyfirlit

Suðurhólar 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
91 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
691.209 kr./m2
Fasteignamat
53.950.000 kr.
Brunabótamat
42.950.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1980
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2050891
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað annað en í lagi
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
í lagi að sjá
Þak
2020 Járn og pappi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita/Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
**  HÆGT ER AÐ ÓSKA EFTIR SKOÐUN HÉR  **
 
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Einstaklega björt, rúmgóð, vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja endaíbúð á 3.hæð í sérlega snyrtilegu fjölbýli með sérinngangi af svölum. 
Innan íbúðar er forstofa, eldhús, stofa, borðstofa, tvö herbergi og baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 59.450.000.-

* 2024 - Blöndunartæki í sturtu endurnýjuð 
* 2023 - Gluggar á austur og vestur gafli endurnýjaðir ásamt gluggum í stigahúsi
* 2020 - Þak - járn og pappi endurnýjað og einhverjar sperrur
* Eldhús endurnýjað af fyrri eigendum
* Baðherbergi endurnýjað af fyrri eigendum
* Hurðar endurnýjaðar af fyrri eigendum
* Þvottavél / tengi á baðherbergi
* Geymsla á hæð - við hlið íbúðar og því sérlega aðgengileg
* Gott leiksvæði fyrir börn á sameiginlegri lóð


 
  * SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS *
 
 
   SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D
   SMELLTU HÉR - skoða eignina í 3D - ÁN HÚSGAGNA
   3D er = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
   Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.


Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 91,0 fm sem skiptist í íbúðarrými 84,7 fm (0304) , geymsla 6,3 fm (0308) og fylgir eigninni bílskúrsréttur á lóð sbr eignaskiptayfirlýsingu dagsettri í sept 2001 og staðfest 01.10.2001.
 
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn í flísalagða forstofuna af sameignarsvölum sem snúa til norðurs.
Úr forstofunni er komið inn í miðrými íbúðar þar sem er góður skápur.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými.
Eldhúsið
er á vinstri hönd með fallegri hvítri háglans innréttingu frá Ikea með sérlega góðu skápaplássi, hvítum flísum á milli skápa, innbyggðri  uppþvottavél og harðparket á gólfi. 
Stofa- og borðstofa eru í opnu björtu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar suður svalir með fallegu útsýni.
Herbergi I er mjög rúmgott barnaherbergi með parketi á gólfi, góðum fataskáp og glugga til vesturs.
Herbergi II er hjónaherbergið sem er mjög rúmgott með góðu skápaplássi, harðparketi á gólfi og glugga til suðurs.
Baðherbergið er sérlega snyrtilegt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, skáp undir handlaug, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél, góðum lín skáp, veggföstum hirslum fyrir ofan þvottavélatengi, gluggi til loftunar til vesturs, flísar á gólfi og upp á veggi.
Sér geymsla íbúðar er staðsett alveg við íbúðina og er því mjög aðgengileg og nýtist vel. Geymslan er 6,3 fm.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla og er gróinn garður í sameign.
Leik-, grunn og menntaskóli eru í göngufæri og er stutt í alla helstu þjónustu - verslanir, íþróttaiðkun og heilsugæslu.
Um er að ræða vel skipulagða og rúmgóða eign með útsýni í barnvænu hverfi.
 
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Krummahólar 8
111 Reykjavík
120.7 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
521 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Orrahólar 7
111 Reykjavík
72.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
823 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Efstasund 17
104 Reykjavík
71.8 m2
Fjölbýlishús
312
904 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Seljavegur 3
101 Reykjavík
72.3 m2
Hæð í þríbýlishúsi
211
828 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin