RE/MAX Ísland logo
Skráð 26. mars 2026
Söluyfirlit

Grímsgata 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
149.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
178.500.000 kr.
Fermetraverð
1.194.779 kr./m2
Fasteignamat
124.250.000 kr.
Brunabótamat
104.400.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Stefán Jarl Martin
Stefán Jarl Martin
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2526958
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
í lagi
Raflagnir
í lagi
Frárennslislagnir
í lagi
Gluggar / Gler
í lagi
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir 55,6 m2
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX og Stefán Jarl kynna: Stórglæsileg og vönduð endaíbúð á efstu hæð í nýlegu lyftuhúsi innst í botnlanga við Grímsgötu 8 í Urriðaholti og stendur húsið við ósnortna náttúru Heiðmerkur. Mikilfenglegt útsýni er úr íbúðinni til austurs, norðurs og vesturs.
Eignin er 149,40 m² að stærð, þar af 6,5 m² geymsla, og státar af 55,6 m² þaksvölum. Auk þess fylgir rúmgott stæði merkt í lokaðri bílageymslu, sem undirstrikar gæði og hagnýti þessarar glæsilegu eignar.
Húsið stendur innst í botnlanga á rólegum stað í Urriðaholti. Íbúðin einkennist af mikilli lofthæð, gólfsíðum gluggum sem tryggja einstaka birtu, og vönduðum efnisvali og frágangi í hvívetna.
Innréttingar í íbúðinni eru af vandaðri gerð frá GKS Trésmiðju, þar á meðal Nobilia eldhúsinnrétting með kvartsborðplötum frá Silestone og eldhúseyju úr samkeyttum steini frá Steinprýði. Eldhústæki eru frá Siemens, með innbyggðum kæliskáp/frystiskáp og uppþvottavél.
Íbúðin er búin loftskiptikerfi, gólfhita og rafstýrðum gluggatjöldum með fjarstýringu, sem stuðlar að hámarks þægindum.
Niðurlímt viðarparket er á gólfum, en flísar frá NAXB (Pro í Ivory lit frá Álfaborg) á votrýmum.
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, þar á meðal rúmgóða hjónasvítu með sér baðherbergi. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni, bæði með frístandandi Balika handlaugum, og einnig er sér þvottahús.

Anddyri
Rúmgott anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Myndavéladyrasími er til staðar.
Alrými
Samliggjandi stofa og borðstofa í opnu og björtu rými með niðurlímdu viðarparketi. Gólfsíðir gluggar tryggja mikla náttúrulega birtu og að útsýnið njóti sín. Gardínur eru rafstýrðar. Útgengi er á stórar 55,6 m2 þaksvalir frá alrýminu.
Eldhús
Vönduð Nobilia innrétting frá GKS trésmiðju í dökkum lit með borðplötu úr kvartssteini frá Silestone. Eldhúseyja er úr samkeyttum svörtum steini frá Steinprýði með stóru helluborði með innbyggðri viftu. Öll tæki eru frá Siemens, þar á meðal innbyggður kæli/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél. Niðurlímt viðarparket á gólfi.
Hjónasvíta
Rúmgott og bjart hjónaherbergi með niðurlímdu viðarparketi og góðum innbyggðum skápum. Útgengi á svalir. Sér baðherbergi er inn af hjónaherberginu.
Baðherbergi hjónasvítu
Flísalagt gólf og veggir með flísum frá NAXB í Ivory lit. Upphengt salerni, sturta með glervegg og frístandandi handlaug frá Balika á dökkri innréttingu.
Svefnherbergi II
Bjart svefnherbergi með niðurlímdu viðarparketi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi III
Bjart svefnherbergi með niðurlímdu viðarparketi og góðum fataskápum.
Aðalbaðherbergi
Flísalagt gólf og veggir með flísum frá NAXB í Ivory lit. Upphengt salerni, sturta með glervegg og frístandandi handlaug frá Balika á dökkri innréttingu.
Þvottahús
Sér þvottahús með flísum á gólfi, vinnuborði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Útisvæði og bílastæði
Næg bílastæði við húsið, snyrtileg lóð og sér stæði í lokaðri bílageymslu.
Þaksvalir
Einstaklega rúmgóðar þaksvölur sem eru 55,6 m² að stærð. Þær bjóða upp á óskert útsýni yfir náttúruna við Heiðmörk.
Bílastæði og geymsla
Rúmgott stæði merkt B-04 í lokaðri bílageymslu. Einnig fylgir sér geymsla í sameign á jarðhæð sem er 6,5 m² að stærð auk þess að eigninni fylgir rými í sameiginlegri útigeymslu fyrir t.a.m dekkjageymslu.
Staðsetning
Eignin er staðsett innst í botnlanga við ósnortna náttúru Heiðmerkur, sem býður upp á rólegt og skjólgott umhverfi með greiðum aðgangi að útivist.
Almennt um eignina
Nýleg og vönduð eign frá árinu 2024 með hágæða búnaði og kerfum. Húsið er staðsteypt og klætt með vandaðri álklæðningu ásamt steintrefjaplötum á stigahúsi og jarðhæð.
Byggingarár og ástand
Eignin er nýbyggð árið 2024 og er því í topp standi. Öll efnisval og frágangur er í samræmi við nútíma gæðastaðla.
Tækni og kerfi
Íbúðin er búin gólfhita í öllum rýmum og loftskiptikerfi sem tryggir gott inniloft og orkunýtni.
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2526958
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
4
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.100.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Þorraholt 1A
210 Garðabær
142.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
322
1,155 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kinnargata 21
210 Garðabær
154.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
423
1,119 þ.kr./m2
172.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hestamýri 4B
225 Garðabær
188.4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
522
992 þ.kr./m2
186.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hestamýri 4A
225 Garðabær
182.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
422
932 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin