Berglind Hólm lgfs og Þorsteinn lgfs. með RE/MAX kynna: Nýtt í sölu 10 stórglæsilegar íbúðir með sjávarútsýni á efstu hæðum í Bakkabraut 9-23.
íbúð númer 419 er sérlega skemmtileg penthouse íbúð á tveimur hæðum (4. Og 5.hæð) í Bakkabraut 19b sem. Íbúðin er einstök þar sem komið er inn í hana á 4.hæð og gengið er svo upp stiga innan íbúðar upp á 5.hæðina. Á 4.hæðinni er anddyri, 3 góð svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, fataherbergi og 12 m2 svalir. Á 5.hæð er alrýmið sem rúmar eldhús, setustofu og borðstofu, einnig er þriðja baðherbergi íbúðarinnar á hæðinni. Gengið er út á stórar rúmlega 60 m2 þaksvalir þar sem hægt er að tengja heitan pott. Gert er ráð fyrir að hægt sé að setja arinn. Gólfsíðir gluggar, mikilli lofthæð og loftútskiptikerfi. Íbúðarhlutin er skráður 208,2 m2 en að auki fylgir henni 32,3 m2 bílskúr (frístundaskúr) í bílakjallara og 2 stæði í bílageymslu.
Íbúðin er auglýst og selst tilbúin til innréttinga. Einnig er hægt er að fá íbúðina fullbúna, nánari lýsing og verð er neðar í lýsingu.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / email: berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / email: steini@remax.isAuglýst verð miðast við afhendingu íbúðarinnar tilbúinnar til innréttinga, sem gefur kaupanda kost á að haga hönnun og efnisvali eftir eigin stíl og óskum. Einnig er í boði að fá íbúðina afhenta fullkláraða án megingólfefna á 380.000.000 kr. Við þau skil geta kaupendur valið á milli tveggja hönnunarþema, Yls og Steins. Nánari upplýsingar um afhendingarástand og endanleg skil fást hjá söluaðila.Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali.
Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.
Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts.
Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.
Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptikerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.
Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar.
Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / email: berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / email: steini@remax.is