RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt þriggja herbergja 70,2 fm. íbúð á 2. hæð í tveggja hæða fjöleignahúsi. Íbúðin telur forstofu, hol, eldhús, borðstofu og stofu, stórar suður svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi með góðri þvottaaðstöðu. Íbúðin getur verið laus fljótlega eða eftir samkomulagi.
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is
Eignin er mjög vel staðsett í grónu hverfi, öll helsta þjónusta í göngufæri og stutt í allar helstu samgöngur. Góð aðkoma að húsinu og næg bílastæði fyrir framan hús.Nánari lýsing: Gengið er inn sameiginlegt stigahús austanmegin við húsið og þar upp á aðra hæð. Þrjár íbúðir deila inngangi.Forstofa er parketlög með fatahengi.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og góðum efri skápum. Helluborð, bökunarofn og gufugleypir.
Borðstofa og stofa er í björtu og opnu rými, stórir gluggar í tvær áttir, parket á gólfum.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi er mjög stórt og rúmgott með fataskápum (í dag nýtt sem barnaherbergi) og annað minna svefnherbergi sunnanmegin, með rennihurð. Úr herberginu er
útgengt út á stórar suður svalir. Svefnherbergi við svalir var bætt við fyrir nokkrum árum og einfalt er að breyta til baka og stækka stofu/opna inní eldhús.
Baðherbergi er með nýlegri vaskinnréttingu með ágætu skápaplássi, flísalagðri sturtu, handklæðaofni og tveir góðir opnanlegir gluggar. Inn af sturtu er
tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt gólf og veggir að hluta.
Bílastæði eru sameiginleg á lóð við húsið.
Íbúðin var talsvert endurnýjuð fyrir nokkrum árum, m.a. skipt um gólefni, rafmagnstengla/rofa og baðherbergi endurnýjað. Í sameign er sameiginleg geymsla.Ath. fyrirhugað fasteignamat eignarinnar ´27 er kr. 61.600.000,-Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.