RE/MAX ásamt Guðbjörgu Helgu og Gylfa Jens löggiltum fasteignasölum kynna Flyðrugranda 4, 107 Reykjavík.Björt og falleg 2-3ja herbergja íbúð á jarðhæð í vel staðsettu fjölbýli í vesturbæ Reykjavíkur. Gengið er niður eina hæð frá aðalinngangi, en einnig er hægt að koma garðmegin beint inn í húsið um 2 innganga. Virkt húsfélag er í húsinu. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði KR, sundlaug Vesturbæjar og ýmsa þjónustu á Eiðistorgi. Á efstu hæð er sameiginleg sauna og sturtuaðstaða fyrir stigahúsið.
Eignin er skráð 71,1 fm hjá HMS, þar af íbúðarhluti 65,2 fm og sérgeymsla 5,9 fm.
Fasteignamat 2026 verður kr. 61.900.000,-.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT HÉR** NÚVERANDI SKIPULAG: Forstofa, stofa, eldhús, baðherbergi, herbergi, gluggalaust herbergi opið við stofu, hellulögð verönd og sérgeymsla
NÁNARI UPPLÝSINGAR:Inngangur er á 2. hæð. Gengið er því niður snyrtilegan stigagang með sameiginlegum inngangi nður á jarðhæð hússins. Tveir inngangar eru jafnframt garðmegin á þeirri hæð sem húsið er, en lengri gönguleið er að því.Samstætt harðparket er á íbúðinni utan baðherbergis sem er með flísum.
Forstofa: Rúmgóð með fatahengi.
Eldhús: Hvít IKEA innrétting L-laga með svartri borðplötu. Bakaraofn undir borðplötu og veggháfur, innbyggð uppþvottavél. Opið er inn í Stofu/borðstofu sem myndar alrými með eldhúsi.
Baðherbergi: Flísalagt á votsvæðum og gólfi en önnur svæði lökkuð. Walk in sturta og glært sturtugler. Hvít innrétting er undir handlaug með skúffum. Upphengt salerni.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á hellulagða verönd þar sem sólin kemur upp úr hádegi og er framundir kvöld á sólardögum.
Herbergi: Bjart og rúmgott herbergi sem býður upp á að hafa tvíbreitt rúm þversum á langvegg.
Herbergi 2/ rými: Gluggalaust rúmgott rými /herbergi/skrifstofuútskot opið við stofu. Í dag er það nýtt sem herbergi með tvíbreiðu rúmi, lokanlegt með lausri þverstöng og gardínum. Möguleiki er að setja upp vegg og hurð þarna. Rými sem býður upp á ýmsa notkunarmöguleika.
Sérgeymsla: Er rúmgóð og þar sem hún er staðsett við hlið íbúðar væri hægt að sameina hana íbúðinni með því að opna inn í hana.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús 4 íbúða með þvottavél og þurrkara er á hæð íbúðar. Sameiginleg hjólageymsla er á hæð íbúðar með útidyrahurð, leikherbergi sem er nýtt fyrir vagna og lítið notað með útidyrahurð. Ef fólk kýs að nota ekki tröppurnar er komið inn á íbúðagang um leikherbergi eða hjólageymslu. Á efstu hæð er sameiginleg sauna og sturtuaðstaða. Bílastæði úti eru sameiginleg og er búið að setja upp rafhleðslustöðvar á lóð.
.
Samandregið er þetta afar sjarmerandi og skemmtileg 2ja-3ja herbergja íbúð í vinsælu húsi á vinsælum stað í Vesturbænum. Íbúðin er skráð 2ja herbergja með einu svefnherbergi en þetta aukarými nýtist á ýmsa vegu, ma. fyrir rúm. Rafhleðslustöðvar eru á lóðinni. Stutt er í alla helstu þjónustu, sundlaug, kaffihús, verslanir og á KR völlinn. Seljandi skoðar skipti á 4ra+ herbergja íbúð í Vesturbænum milli þessarar staðsetningar og Melaskóla.
Helstu framkvæmdir síðustu árin:Virkt og öflugt húsfélag sem heldur vel utan um allt viðhald2025: Bílastæði lagfært
2023: 8 Hleðslustöðvar fyrir rafbíla settar upp
2023: Grjóthleðsla á lóð
2010: Þak yfirvarið og viðgert
>2017: Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu fyrir nokkrum árum en þeim framkvæmdum lauk 2017.
Framkvæmdir á séreignarhluta:2018: Allt gler í gluggum endurnýjað
2015: Eldhús og baðherbergi var endurnýjað
2015: Skipt um gólfefni á allri íbúðinni
Allar nánari upplýsingar veita:Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is. og síma 897-7712
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822 5124