Vernharð Þorleifsson lgf. og RE/MAX kynna fasteign við Meðalfellsveg þar sem rekin hefur verið veitingastaðurinn Kaffi Kjós. Eignin stendur á 3.500 fm. eignarlóð með frábæru útsýni yfir Meðalfellsvatn. Veitingastaðurinn er til sölu með eða án tækja. Hægt er að breyta skráningu eignarinnar í sumarhús ásamt lóð. Seljendur skoða að taka fasteign upp í söluverðið. Skv. Þjóðskrá er húseignin 143,3 fm. og geymsla 42 fm. eða samtals 185,3 fm. Húsið var byggt 1997 (63 fm.) og 2004 var bætt við 80 fm. Geymslan var byggð 2015 og pallurinn 2017.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.