109, Reykjavík

Giljasel 7

124.900.000 KR
Fjölbýli
6 herb.
256 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 256 M²
  • Herbergi 6
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 3
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1979
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

RE/MAX, ásamt Garðari Hólm lgf. og Guðlaugu Jónu lgf. kynna: Fallegt og vel staðsett 256,8 fm eign með bílskúr og aukaíbúð við Giljasel 7, Reykjavík. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðareiningin sjálf 194,3 fm, bílskúrinn 32,5 fm og geymsla 30 fm sem er í dag innréttuð sem stúdíóíbúð og er í leigu. Húsið er nýmálað að utan og aðkoman að húsinu er mjög snyrtileg. 
Húsið er á á frábærum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. 

Nánari lýsing:
Aðalhæð:

Forstofa með parketi á gólfi.
Gestasalerni er inn af forstofu með upphengdu salerni, handlaug, hvítum skápum undir handlaug og hringspegli með ljósi. Flísar á gólfum og að hluta til veggjum, opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi. Með þessu svefnherbergi er sér baðherbergi. 
Baðherbergi er inn af svefnherbergi með flísalagðri sturtu með glerskilrúmi og hengi. Upphengt salerni, handlaug , með hvítum skápum undir handlaug og spegli með ljósi. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi og að hluta til veggjum.
Eldhús er með ljósgrárri eldhúsinnréttingu með nýlegri dökkri borðplötu. Nýlega búið að skipta um bakarofn, helluborð og gufugleypir. Gott skápa- og vinnupláss. Góðir gluggar eru á eldhúsi sem gerir það einstaklega bjart og fallegt. Parket á gólfi. 
Borðstofa/ Stofa er samliggjandi og er mjög rúmgott rými. Fallegt útsýni úr hornglugga í borðsstofu. Parket á gólfi. 
Svalir eru rúmgóðar og nýlega er búið að byggja yfir þær svalalokun.

Efri hæð:
Hol sem er hægt að nýta sem sjónvarpshol eða setustofu. Parket á gólfi.
Herbergi II er rúmgott með fallegu útsýni. Parket á gólfi. 
Herbergi III&IV eru nokkuð rúmgóð með parketi á gólfi. 
Baðherbergi er rúmgott með góðri skúffu einingu með handlaug, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.

Neðri hæð:
Þvottaherbergi er mjög rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymslupláss er undir stiganum.

Aukaíbúð:
Er undir bílskúrnum og er í 30 fm skráðu rými.  Í íbúðinni er eldhúsinnréttting, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. 

Bílskúrinn er 32,5 fm og er með stórri opnanlegri hurð og gönguhurð. Þar er heitt og kalt vatn og hiti. 

Annað:
Húsið er nýlega málað.
Nýlegt parket er á eigninni.
Búið er að skipta um tengla.
Nýlega búið að setja svalalokun.


Nánari upplýsingar um eignina veita:
Garðar Hólm lgf. í gegnum [email protected] eða s. 899-8811
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum [email protected] eða s. 661-2363