101, Reykjavík (Miðbær)

Tjarnargata 10B

68.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
84 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 84 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1945
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Tjarnargötu 10B, íbúð 0501 - fnr. 200-2797

Íbúðin er skráð 84fm, 3 herbergja íbúð á 5. og efstu hæð í 5 hæða fjölbýlishúsi. Íbúðarhlutinn er skráður 81.9 fm og geymsla á stigapalli er skráð 2.1 fm. Þar sem íbúðin er að hluta til undir súð þá er grunnflötur íbúðarinnar meiri en uppgefnir fermetrar.  Húsið er skráð byggt árið 1945 og er steypt. Fimm íbúðir eru í húsinu og eiga seljendur fjórar þeirra og eru þær allar  í sölumeðferð núna. 


FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Aðkoma: Inngangur í húsið er gengt raðhúsi Reykjavíkur. 

Stigagangur: Teppalagður stigagangur er í húsinu með góðu virðulegu handriði. 

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Mjög rúmgott rými. 

Eldhús: Parket á gólfi. Innrétting á tveimur veggjum með vaski. Eldavél og helluborð með háfi yfir. 

Svefnherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum beggja. Hægt er að ganga í annað herbergið úr eldhúsi og einni er hurð inn í það rými á stigapalli. 

Baðherbergi: Málað gólf. Sturta með hengi. Skápur með handlaug. Salerni. Þakgluggi er í rýminu. 

Geymsla: Er gegnt inngangi í íbúðina og er skráð 2,1 fm. 


Falleg íbúð og frábærlega staðsett í hjarta Reykjavíkur. Virkilega falleg efsta hæð. Gott rými er einnig yfir herbergjum sem mætti standsetja og nýta. Tilvalið tækifæri fyrir aðila t.d. í ferðaþjónustu að eignast þrjár íbúðir í sama húsinu. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á [email protected]

Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. 


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.