101, Reykjavík (Miðbær)

Njarðargata 29

Tilboð
Fjölbýli
7 herb.
92 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 92 M²
  • Herbergi 7
  • Stofur 3
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1926
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX kynnir í einkasölu: Virkilega falleg, björt og töluvert endurnýjuð 92,3 fm. íbúð á tveimur hæðum í góðu steinsteyptu húsi byggt 1926 við Njarðargötu 29, 101 Reykjavík.   Íbúðin er einstaklega sjarmerandi og skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús sem er opið inn til borðstofu, stofu og sjónvarpsstofu.  Lítið lokað rými er í forstofu fyrir þvottaaðstöðu. Efri hæð skiptist í opið rými, þrjú svefnherbergi og fataherbergi. Einnig er geymslurými undir súð.  Fallegt útsýni er úr íbúðinni.  

Einstök eign á góðum og rólegum stað í hjarta Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir.  Eignin hefur verið mikið endurnýjuð af núverandi eigendum á afar vandaðan og smekklegan hátt.

** Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected] **


KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

NÁÐU Í SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing neðri hæð:
Forstofa
er með nýlegri svartri hurð með gluggum. Nýjar flísar á gólfum frá Flísabúðinni. Í forstofu er lítið herbergi með þvottaaðstöðu.
Baðherbergi er nýlega tekið í gegn.  Einstaklega falleg innrétting með vaski frá Dekkor, jafnframt eru blöndunartæki og sturtugler frá þeim. Versace flísar eru í sturtubotni.  Gólfhiti er tengdur við handklæðaofn og upphengt salerni frá Tengi. Stór og bjartur gluggi með opnanlegu fagi. Flísar frá Flísabúðinni.
Eldhús er nýlega tekið í gegn.  Falleg innrétting úr við og skápafrontar frá HAF-studio með innfelldum ísskáp og uppþvottavél.  Borðplatan er vönduð, hvít póleraðuð Macaubas-kvartsít frá Fígaró. Undirlímdur vaskur, innfellt spanhelluborð og bökunarofn. Eldhús er opið til borðstofu, með stórum og björtum gluggum.  Settur var nýr gluggi þar 2019 með flóttaleið.
Stofa- og sjónvarpsstofa er rúmgóð og björt í samliggjandi rými. Veggur í stofu var tekinn niður og opnað á milli 2021.

Nánari lýsing efri hæð:
Gengið er upp fallegan stiga á milli hæða í opið rými á efri hæð. Efri hæð er að hluta undir súð og því gólfflötur stærri en uppgefnir fm.
Svefnherbergin eru þrjú. Eitt herbergið/skrifstofan var nýlega gert fokhelt, sett ný einangrun, nýtt rafmagn og tenglar.  
Fataherbergi er við hlið hjónaherbergis og getur einnig nýst sem barnaherbergi.
Í opnu rými er gott geymslupláss undir súð, stúkað af með hurðum.  Einnig er stigi/flóttaleið upp á þak.

Úr sameign á neðri hæð er útgengt út á sameiginlegt svæði með hellulagðri verönd.  Bílastæði eru almenn fyrir framan hús og mikill kostur að ekki sé gjaldskylda í dag.

Helstu framkvæmdir og viðhald síðustu ára:
2021:

- Settur hiti í gólf á neðri hæð á alrými og sett nýtt harðparket.
- Öll neðri hæð gerð fokheld út að steypu og einangrun endurnýjuð skv. núverandi byggingarstöðlum og heldur því betur hita. Efri hæðin var einnig yfirfarin og var metin í góðu ástandi og ekki talin þörf á að endurnýja út að ytra byrði.
- Dregið var í nýtt rafmagn á allri neðri hæð og sett ný rafmagnstafla. Jafnframt voru settir nýir tenglar og rofar.  Á efri hæð var rafmagn yfirfarið og skipt út þar sem þörf var á. 
- Stigi milli hæða var yfirfarinn, teppi var tekið af. Stigi pússaður og lakkaður/málaður upp á nýtt.
- Veggir á efri hæð yfirfarnir, heilsparslaðir að hluta og málaðir. 

2019:
- Þakgluggar á efstu hæð endurnýjaðir. Einnig var þak yfirfarið, háþrýstiþvegið og málað, metið í góðu ástandi.
- Húsið var sprunguviðgert að utan eftir þörfum, háþrýstiþvegið og málað.

2018:
- Gluggar og gler á miðhæð endurnýjað.

Lagnir hafa jafnframt verið endurnýjaðar þar sem þörf var á og í kjallara voru lagnir yfirfarnar.  Ljósleiðari er jafnframt til staðar.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.