108, Reykjavík (Austurbær)

Álftamýri 6

75.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
126 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 126 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1966
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

RE/MAX kynnir í einkasölu fjögurra herbergja, 126,6 fm íbúð ásamt bílskúr á fyrstu hæð við Álftamýri 6 í Reykjavík. Svalir við íbúðina eru í suður. 

Íbúðin skiptist í stofu / borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús, þvottaherbergi og gang. Í kjallara er 5,6 fm geymsla. Bílskúr er 20,3 fm.  Falleg og vel skipulögð íbúð í barnvænu hverfi, grunn- og leikskólar í næsta nágrenni. Góðar gönguleiðir og stutt í fallega náttúru s.s. í Laugardalinn. 

Hér má sjá eignina í 3D:

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur. Stofa:  Parket á gólfi, útgengt er út á svalir frá stofu. Eldhús:  Opið við stofu, flísar á gólfi, útgengt er út á svalir frá eldhúsi. Hjónaherbergi: Parket á gólfi með fataskáp.
Tvö barnaherbergi með parketi. Þvottahús:  Flísalagt með vaski. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu. Geymsla: 5,6 fm í kjallara hússins.  Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara ásamt sameiginlegu þvottaherbergi.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Vinsamlega hafið samband við Þorstein Ólafs í síma 842-2212 eða með pósti á [email protected].