102, Reykjavík

Smyrilshlíð 4

89.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
202 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 202 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2019
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna:
Glæsilega 4ra herbergja íbúð í lyftuhúsi á þriðju hæð við Smyrilshlíð 4, Reykjavík. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin 101,1 fm og þar af geymsla í kjallara 6,8 fm. Rúmgóðar svalir eru á íbúðinni sem snúa í inngarð í suður.


Húsið er viðhaldslétt, einangrað að utan og klætt með málmklæðningu. Hurðar eru hvítar og innréttingar eru ljósar úr plastlögðu viðarlíki og sprautlakkaðar. Flísar eru á baðherbergi en harðparket á öðrum gólfum. 
 
Nánari lýsing:  
Forstofa: Forstofa er rúmgóð með góðum fataskáp. 
Eldhús: Innrétting er í ljósum plastlögðum viðartón og efri skápar sprautaðir, grár borðplata.  Tæki eru frá Whirlpool. Keramik helluborð og blástursofn.   
Stofa/borðstofa: Rúmgott opið rými við eldhús. Harðparket er á gólfi og þaðan er útgengt á góðar svalir sem snúa í inngarð til suðurs. 
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðum fataskápum. Harðparket á gófli. 
Herbergi II&III: Með góðum skápum og harðparketi á gólfi. 
Baðherbergi: Baðinnréttingin er í ljósum lit með grári borðplötu. Upphengt salerni og handklæðaofn. Walk in sturta með glerskilrúmi. Flísar á gólfi og að hluta til veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla er í kjallara sameign húsins. Hún er 6,8 fm. 
Umhverfið: Stutt er að fara til að njóta náttúrunnar í fallegu umhverfi við Öskjuhlíð og Nauthólsvík.  Einnig er stutt á marga af stærri vinnustöðum miðborgarinnar auk tveggja háskóla.  


Allar nánari upplýsingar veita:
Guðlaug Jóna lgf. s. 661-2363 eða [email protected]
Garðar Hólm lgf. s. 899-8811eða [email protected]