221, Hafnarfjörður

Klukkuvellir 1

78.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
115 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 115 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2015
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Klukkuvelli 1, íbúð 0103 fnr. 235-0530

Íbúðin er skráð samkv. Þjóðskrá 115,6fm og þar af er geymsla 7,4fm. Húsið er byggt 2015 og er fjögurra hæða steypt fjölbýlishús með lyftu. 

3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi. Góður fataskápur.

Stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi. Gengið er úr stofu á stóran sólpall með skjólveggjum sem snýr í suður.

Eldhús: Harðparket á gólfi. Eikarinnrétting með eyju. í Eyjunni er spansuðuhelluborð með stórum háfi yfir. Í veggeiningu innréttingarinnar er Gram bakaraofn og vaskur.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð inngöngu sturta með gólfhalla og glerþili. Eikarinnrétting með handlaug. Upphengt salerni og handklæðaofn.

Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur í innréttingu og þvottasnúrur.

Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi. Fataherbergi er inn af með góðum skápum.

Barnaherbergi: Harðparket á gólfum barnaherbergjanna sem eru tvö og eru eikarfataskápar í þeim báðum.

Lóð: Frágengin lóð með tyrftri grasflöt. Skýli fyrir sorptunnur er fyrir framan húsið.

Geymslur: Læst 7,4fm geymsla og einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.


Húsið er á skjólgóðum stað við Klukkuvelli 1 á Völlunum í Hafnarfirði. Klukkuvellir eru við Skarðshlíð sem er í töluverðu skjóli fyrir norðan áttinni og beint á móti suðri. Íbúðin er falleg 4 herbergja og vönduð. Gott pláss er í kringum húsið og ekkert annað fjölbýli ofan í húsinu. Þrjú góð herbergi og sér þvottahús. Innbyggð lýsing er í stofu. Stutt í skóla og leikskóli er í næsta húsi


Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -


Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.