103, Reykjavík (Kringlan/Hvassal)

Háaleitisbraut 68

415.000.000 KR
Atvinnuhúsnæði
821 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Atvinnuhúsnæði
  • Stærð 821 M²
  • Herbergi 0
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1964
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX, Garðar Hólm lgf. og Guðlaug Jóna lgf. kynna: Glæsilegt verslunarhúsnæði í rótgrónum kjarna (Austurver) við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík.  Húsnæðið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár og er staðsetningin frábær útfrá því að vera miðsvæðis.

Háaleitisbraut 68
Í dag er eru allir eignahlutarnir sameinaðir undir eina verslun, en er þó á þremur fastanúmerum.

010105 Verslun: Stórt og gott verslunarhúsnæði sem skiptist í sal, skrifstofur, kaffistofu, starfsmannaklósett og geymslu í kjallara.  
010106 Verslun: Rýmið er að hluta undir verslun og einnig undir lager og verkstæði.  Engu að síður er allt svæðið verslunarrými með glugga inn í verslunarkjarnann.
010119 Verslun: Auðvelt er að stúka rýmið frá og hafa þar sér rými sem hægt væri að leigja fyrir töluvert hærri upphæð vegna smægðar sinnar.
Heildareignin:  Um er að ræða 821,9 fm í Háaleitisbraut 68 sem er hluti af töluvert stærri eign.  Byggingarréttur upp á u.þ.b. 160 fm fylgir eigninni.  Eignin hefur hlotið gott viðhald að undanförnu og m.a. er búið að framkvæma miklar endurbætur á þaki.  Á næstunni stendur til að halda áfram að bæta fasteignina að utan.   Kjarnin er í blómlegum rekstri og hefur ekki verið mikil velta á leigutökum undanfarin ár, enda staðsetningin mjög miðsvæðis í Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veita Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða [email protected] eða Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða [email protected]