RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í sölu vel staðsetta frístundalóð að Hraunvegi 26 í Fjallalandi við Leirubakka.
Um er að ræða eignarlóð, en skráð stærð lóðar samkvæmt HMS er 6500 fm. Samkvæmt gildandi skipulagi má byggja bústað á einni hæð, grunnflötur má vera allt að 160 fm. Mænishæð bústaðarins má ekki vera meiri en 4,5 metrar yfir gólfkóta. Innan byggingarreitar, í innan við 20 metra fjarlægð við bústaðinn, má reisa allt að 25 fm hús.
Kalt vatn og rafmagn er komið að lóðarmörkum.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða [email protected]