YFIRLIT
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 217 M²
-
Herbergi 5
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1989
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
EIGNIN ER SELD OG FELLUR ÞVÍ OPIÐ HÚS NIÐUR!
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mikið uppgert einbýlishús á einni hæð með bílskúr á Kjalarnesinu. - Ofnar endurnýjaðri og hitaveitugrind yfirfarin 2023
- Pallur, sauna, pottur, útisturta, grillskýli og geymsluskúr 2020
- Gler að mestu endurnýjað (80%) 2019
- Stærra baðherbergi endurnýjað 2019
- Bílaplan malbikað 2019
- Eldhús endurnýjað 2018
- Þak yfirfarið og málað 2018
- Bílskúr innréttaður og ný bílskúrshurð 2017
- Minna baðherbergi endurnýjað 2017
- Geymsluloft yfir ca 30% af húsinuHúsið er skráð 181,7 m² og bílskúrinn 36,2 m², samtals 217,9 m². Eignin er byggð úr timbri árið 1989. Lóðin er 783 m².
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉRNánari lýsing: Stofan er stór með fallegum gluggum og útgengt út á pall. Parket á gólfi.
Eldhúsið er rúmgott með stórum borðkrók, mikið skápapláss í innréttingu. Gott vinnupláss og létt yfirbragð yfir eldhúsinu. Innbyggð uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Stórt hol tengir saman ofangreind rými og svefnherbergin.
Útfrá holinu er gangur sem leiðir inn á baðherbergi, eitt svefnherbergi og út á pall.
Fjögur svefnherbergi eru í eigninni í dag. Möguleiki er að breyta geymslu í 5 herbergið/skrifstofu en þar er opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergið er stórt með góðum innbyggðum skáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergin eru þrjú og eru öll herbergin með parketi á gólfi.
Aðalbaðherbergið er með stórum walk in sturtuklefa. Upphengt klósett, handklæðaofn, vaskaeining og skápur. Gluggi fyrir loftun.
Aukabaðherbergið: sturtuklefi, klósett og innrétting. Veggir málaðir með skipamálningu.
Þvottahúsið er með góðu vinnuplássi, vaski og útgengi út í garð.
Bílskúrinn er 36,2 m², flísar á gólfi og innréttingar/skápar á veggjum. Nýlega bílskúrshurð með rafmagnsopnara.
Kjalarnes er með góðan grunnskóla í göngufæri og sundlaug. Fjölskylduvænn staður.
Nánari upplýsingar veitir Brynjar Ingólfsson MSc, í síma 666 8 999 eða [email protected]