270, Mosfellsbær

Vefarastræti 7-9

74.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
102 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 102 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2017
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: [email protected]) kynnir til sölu fjögurra herbergja horníbúð á efstu hæð í lyftuhúsi auk stæðis í bílakjallara við Vefarastræti 7-9 , Mosfellsbæ. Frábært útsýni. Góð eign á frábærum stað í Helgafellslandinu í Mosfellsbæ. Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt og alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í nágrenninu.

Eignin er skráð 102,1fm og þar af er 7,9fm geymsla innan eignarinnar. Stæði í bílageymsluhúsi. Eignin skiptist í forstofu, geymslu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi. Hjóla- og vagnageymsla í sameign. 

Nánari Lýsing:
Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri með fataskáp. 
Stofa og borðstofa: Bjartar með fallegum stórum hornglugga sem setur skemmtilegan svip á stofuna, parket á gólfi.
Eldhús: er aðskilið með eyju frá stofunni, falleg hvít HTH innrétting.
Hjónaherbergi: með skápum, parketlagt, útgengt á suður svalir.
Barnaherbergin: eru tvö, bæði með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, innrétting með plássi fyrir þvottavél, upphengt wc, handklæðaofn,  sturta. 
Geymsla: Rúmgóð geymsla er innan íbúðar, staðsett við anddyrið. 
Hjóla- og vagna geymsla: er í sér skúr við húsið.
Bílageymsla: rúmgott stæði, tengi fyrir rafbíla.

Húsið er þriggja hæða íbúðarbygging, byggt 2017, með 35 íbúðum auk bílakjallara og sameiginlegra rýma sunnan við Helgafell. Einn heitavatnsmælir er fyrir sameiginlegan hita, hver eign greiðir af þeim mæli samkvæmt hlutfallstölu. Hitalögn er í gangstétt fyrir framan stigahússinnganga, í akstursrampi, í útitröppum og bílastæði fyrir hreyfihamlaða. Eigninni fylgir stæði í bílageymsluhúsi með tengi fyrir rafbíla. Fjórar sameiginlegar hleðslustöðvar húsfélagsins er að finna bæði bak við og fyrir framan húsið vestan megin. Leiktæki í garði aftan við húsið. Helgafellsskóli er í næsta húsi þar sem er bæði leik og grunnskóli. Nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Stutt í fallegar gönguleiðir.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða [email protected]

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr