YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 81 M²
-
Herbergi 2
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 1
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2023
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
SÝNUM DAGLEGA!!
RE/MAX fasteignasala, Guðlaug Jóna fasteignasali s. 661-2363 eða [email protected] og Garðar Hólm fasteignasali s. 899-8811 eða [email protected] kynna:
Til sölu nýjar íbúðir við Gæfutjörn 10 og Rökkvatjörn 1 í Reykjavík. 21 íbúð eru í húsunum frá 71,0 fm – 132,4 fm. Verð frá 62,9 - 114,9 milljónir.
Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýting á varma. Svalir með rennihurð. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara fylgja hverri íbúð. Eignirnar eru lausar til afhendingar í Nóv 2023. Smelltu hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsingu.Íbúð 205 er glæsileg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með stæði í bílakjallara. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 81,0 fm, þar af er geymsla í kjallara 8,0 fm. Útgengt á 7,0 fm svalir um góða rennihurð. Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með málmklæðningu og gluggar eru úr ál-tré.
Íbúð: 0205
Hæð: 2
Tegund: 2ja herbergja
Stærð: 81,0 m²
Geymsla: 8,0 m²
Stæði í bílageymslu: Merkt B12 Einstaklega vönduð og falleg 2ja herbergja íbúð, merkt: 205 (Hæð 2). Íbúðin er fullbúin án góflefna að undanskildum votrýmum, sem verða flísalögð. Sérstæði í bílageymslu fylgir með. Húsið er einangrað að utan og klætt með málmklæðningu. Loftræstikerfi með varmaskipti er í íbúðinni sem sér til þess að alltaf séu góð loftgæði, kostnaður við kyndingu minnkar og líkur á myglu verða mun minni. Allar innréttingar eru frá Axis.
Helstu eiginleikar:- Sér þvottahús
- Loftræstikerfi með varmaskipti
- Rennihurðar út á svalir
- Gófsíðir gluggar við svalir
- Stæði í bílageymslu
- Einangrað að utan
- Mikið skápapláss
- Innréttingar frá Axis
- Uppþvottavél fylgir
Nánari lýsing:Eldhús: Falleg innrétting frá Axis með helluborði, bakarofni og uppþvottavél. Eyja er í eldhúsi og er eldavélin þar.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á 7,0 fm svalir um góða rennihurð.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og að hluta til veggjum, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn.
Þvottahús: Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með skúffum undir og skápum yfir vélum. Flísar á gólfi.
Geymsla: Er í sameign í kjallara 8,0 fm merkt 16.
Sameign: Í sameign í kjallara er hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Bílastæði í lokuðum bílakjallara merk B12.
Húsið:Gæfutjörn 10 og Rökkvatjörn 1 er glæsilegt og vandað fjölbýlishús byggt af Öxar ehf.
Húsið er á 5 hæðum auk bílakjallara, alls 21 íbúðirr. Húsið er annar hluti af þremur í verkefninu sem saman stendur í heild af 58 íbúðum auk verslunnarhúsnæðis á fyrstu hæð í tveimur húsum. Húsið er byggt úr steinsteypu, einangrað og klætt að utan með málmklæðningu. Gluggar eru álklæddir viðargluggar með tvöföldu gleri.
*Myndirnar sem birtast á auglýsingu íbúðarinnar eru ekki endilega myndir af íbúðinni sjálfri heldur einungis til þess að gefa sýn á útlit eignanna þegar þær eru tilbúnar.
Allar nánari upplýsingar veita: Guðlaug Jóna fasteignasali s. 661-2363 eða [email protected] og Garðar Hólm fasteignasali s. 899-8811 eða [email protected]