YFIRLIT
-
Tegund Raðhús
-
Stærð 85 M²
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 2014
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Erling Proppé & REMAX kynna: Fallegt, vel skipulagt raðhús á einni hæð við Dalsbrún 32, Hveragerði.
- Getur verið laus fljótlega!
- Heitur pottur
- 14,9 fm Geymsluskúr fylgir með 3 fasa rafmagni
- GólfhitiAllar nánari upplýsingar hjá Erling Proppé Lgf. s. 6901300 & [email protected] Skv. FMR er eignin skráð 85,1 fm, að auki er geymsluskúr 14,9 fm sem fylgir og geymsluloft innan eignar. Nánari lýsing: Catstrengur(nettengi) fyrir internet er í öllum herbergjum og stofu, sem er tengt beint inn í smáspennutöflu. Gólfhiti er í allri eigninni með stýringu í öllum rýmum. Innfelld lýsing. Forstofa : með flísum á gólfi, innbyggðum fataskáp og bekkur sérsmíðaður úr furu.
Herbergi I : er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp
Herbergi II : er skráð sem geymsla en notað sem herbergi, fataskápur og parket á gólfi
Hjónaherbergi : er rúmgott með parket á gólfi og rúmgóðum fataskápum
Eldhús : er með innréttingu með gas helluborði, góðum Siemens bakarofni, háfi, eyju með skúffum, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp sem fylgir með eigninni. Fjórar hillur eru sérsmiðaðar úr furu.
Baðherbergi : er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Walk in sturtu með fjörugrjót í sturtugólfi. Pláss fyrir sápubrúsa inni í vegg í sturtu og falleg blöndunartæki. Sérsmíðuð hillueining úr furu
, upphengt salerni og handklæðaofn. Falleg hvít baðinnrétting með frístandandi vaski úr grjóti, innbyggðum blöndunartækjum og fallegum stórum spegil.
Þvottahús : með flotuðu gólfi, innrétting með hækkun fyrir vélar, gott skápapláss, snúrur hanga í lofti og einnig pláss fyrir einfaldan ísskáp/frystiskáp. Farið upp á
geymsluloft úr þvottahúsi, þar sem er gott geymslupláss.
Samliggjandi stofa og borðstofa : er björt, parket á gólfi og útgengt í rúmgóðan suðurgarð.
Garður: Suðurgarður og verönd þar sem sólin skín allan daginn, vel staðsettur heitur pottur, skjólveggir, gras og hellulagt að
14.9 fm geymsluskúr á steyptri plötu með 3-fasa rafmagni. Húsið er steinað að utan og með bárujárni á þaki. Möl í bílaplani fyrir framan hús. Pláss fyrir
þrjú ökutæki.Staðsetningin er mjög fjölskylduvæn þar sem
stutt er í leikskólann Undraland og í verslunarkjarnann við Sunnumörk.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Erling Proppé lgf, s: 690-1300, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.