107, Reykjavík (Vesturbær)

Grandavegur 47

85.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
114 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 114 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1989
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA [email protected]

RE/MAX ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS
löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu: Rúmgóða og bjarta 121,3m2 (þar ef er geymsla 6,5m2), þriggja herbergja endaíbúð á annari hæð í rólegu fjölbýli fyrir 60 ára og eldri. Virkilega góð aðstaða er í sameign þar sem íbúar hafa aðgang að veislusal á 10. hæð, á 1. hæð er sauna, heitur pottur ásamt æfingatækjum. Lóð og öll aðkoma er falleg með góðum  bílastæðum.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er íbúðin skráð fjögurra herbergja en í dag er hún með einu svefnherbergi og öðru opnu herbergi.
EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING.

Smelltu hér og skoðaðu íbúðina í 3D (ekki er þörf á sérstöku forriti til þess)
Smelltu hér og skoðaðu veislusalinn í 3D (ekki er þörf á sérstöku forriti til þess)
Smelltu hér og fáðu söluyfirlit samstundis.

Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, borðstofu og stofu sem eru í samliggjandi stóru flæðandi rými með útgengi á svalir, svefnherbergi er einnig með útgengi úr á svalir, opið herbergi, baðherbergi, þvottahúsi ásamt geymslu og hjóla- og vagnageymslu í sameign.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er íbúðin fjögurra herbergja, í dag er skipulag svona: Forstofa, svefnherbergi, opið herbergi ásamt borðstofu sem skráð er herbergi en er opið inn í stofu. 
Íbúðin er 114,8m2 auk geymslu sem er 6,5m2.


Nánari lýsing:
Forstofa:
Er með þreföldum fataskápum sem ná upp í loft. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Er með góðu skápa- og skúffu plássi ásamt búrskáp, helluborð með viftu fyrir ofan, tengi er fyrir uppþvottavél, bakaraofni þarf að skipta út. Borðkrókur er með einstaklega fallegu sjávar og fjallaútsýni. Korkur á gólfi.
Stofa/borðstofa: Eru í samliggjandi flæðandi og rúmgóðu rými með útgengi út á svalir. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Er með sexföldum fataskápum (með skúffum í) sem ná upp í loft, útgengi er úr á svalir. Harðparket á gólfi. 
Herbergi: Er í opnu rými fyrir framan hjónaherbergi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er með skáp fyrir ofan og neðan vask, speglaskáp með ljósi í, sturtu ásamt handklæðaskáp. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er með góðri innréttingu ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla Er 6,5m2 og er í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Janúar 2024 voru heitavatnslagnir hússins endurnýjaðar að hluta.
Mikil sameign fylgir íbúðinni. Á efstu hæð er veislusalur með glæsilegu útsýni til afnota fyrir íbúa. Á jarðhæð er aðstaða til íþróttaiðkunnar, eru þar tveir búningsklefar ásamt gufubaði og líkamsræktartækjum. Útgengt er þaðan út á aflokaðan pall þar sem er heitur pottur og garðhúsgögn. 
Í húsinu er húsvörður  sem sér um umhirðu sameignar og allt minniháttar viðhald, einnig garðhirðu og hálkuvarnir.
Tvær lyftur eru í húsinu og tveir inngangar. Hárgreiðslustofa er á fyrstu hæðinni. 


Þetta er falleg og eign á góðum stað í Vesturbænum þar sem rólegt og gott er að búa fyrir fólk 60 ára og eldra. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og sundlaug, íþróttamiðstöð og verslun.  

Vertu tilbúin þegar draumaeignin þín birtist.


Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið [email protected].

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.