108, Reykjavík (Austurbær)

Síðumúli 39

64.900.000 KR
Fjölbýli
2 herb.
83 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 83 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2019
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala (sími 823 2641 & [email protected]) og Hörður Björnsson lgf. kynna: Glæsileg tveggja herbergja 79,8 fm. íbúð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Síðumúla 39, Reykjavík.  Íbúðin er skráð 83,6 fm. og skiptist í forstofu, eldhús sem er opið inn til borðstofu- og stofu, skrifstofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla 7,7 fm, er inn í fermetratölu íbúðarinnar, er staðsett í sameign og bílastæði fylgir í lokaðri bílgeymslu.    


FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.


Innréttingar íbúðar eru sérsmíðaðar frá Formus/Vöke og mikið hefur verið lagt í hönnun hússins jafnt að utan sem innan. Aðalhönnuður hússins er Jakob Líndal á Alark arkitektar. Allar innréttingar eru hannaðar af Hallgrími Friðgeirs innanhúsarkitekt. 


Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð og með góðum fataskápum.
Eldhús er með góðri innréttingu, viðarharðklæðningu frá Egger með mattri áferð. Borðplata í eldhúsi er af gerðinni CHPL (Compact High Pressure Laminate) með stálvask. Allar brautir og lamir eru með ljúflokun frá Blum. Efri skápar eru sprautulakkaðir.  Uppþvottavél er innbyggð. Eldhústæki af gerðinni AEG.
Borðstofa- og stofa er mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum. Einnig er auka rými sem hefur verið nýtt sem skrifstofa.  Út stofu er útgengt út á suður svalir.
Svefnherbergi er bjart og með góðum fataskápum.
Baðherbergi er með góðri innréttingu, sérsmíðað frá  Formus/Völke með viðarharðklæðningu frá Egger með mattri áferð.  Salerni er upphengt og sturta er með hitastýrðu blöndunartæki. Flísalagður svokallað „walk-in“ sturtuklefi með hertu öryggisgleri. Skápur er fyrir þvottaaðstöðu. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að hluta. Þeir veggir sem ekki eru flísalagðir eru málaðir með rakaþolnu málningarkerfi. Handklæðaofn er á baðherbergi.
Bílastæði fylgir í lokaðri bílgeymslu.
Sérgeymsla 7,7 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Fallegt harðparket er á gólfum en flísar frá Álfaborg eru á baðherbergi.

Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi í síma 823 2641 eða á netfanginu [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.