815, Þorlákshöfn

Elsugata 3

46.200.000 KR
Raðhús
4 herb.
129 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Raðhús
  • Stærð 129 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 0
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Einkar fallegt endaraðhús með bílskúr á einni hæð með sérafnotareit við Elsugötu 3 í nýju hverfi í Þorlákshöfn. 
Eignin er 129 fm þar af er bílskúr 25,9 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Íbúðin samanstendur af þremur svefnherbergjum, forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. 
Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu og klætt að utan með lituðu járni. Þak er klætt með lituðu járni. 
Frábær staðsetning í nýju hverfi Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.  

-Stór svefnherbergi.
-Stórt alrými.
-Innangengt inn í bílskúr.
-Sér afnotaflötur.
-Hægt að setja heitan pott.

Húsin verða afhent tilbúin að utan, fokheld að innan samkvæmt skilalýsingu og verður afhent 1. febrúar 2024. Verð 46.200.000.
Hægt er að fá húsið afhent tilbúið til innréttinga og er það þá afhent 1. apríl 2024. Verð 57.400.000.


Húsið skilast fokhelt með grófjafnaðri lóð.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.