YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 68 M²
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 1995
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens löggiltir fasteignasalar ásamt RE/MAX kynna Skólavörðustíg 16A með lyftu:Björt, falleg og litrík
3ja herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu 5 hæða
fjölbýlishúsi með lyftu á frábærum stað í miðborginni.
Heildarstærð eignar er skráð 68,1 fm. Skjólgóðar
rúmgóðar svalir eru til suðvesturs. Allir fermetrar eignarinnar nýtast einstaklega vel. Húsið stendur á
eignarlóð. Þóra Birna Björnsdóttir innanhússarkitekt hannaði eldhúsið 2012 og baðhergið 2020 og fóru framkvæmdir fram sömu ár. Eignin getur verið laus við kaupsamning.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR** **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD ÞRÍVÍDD MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR. Njóttu þess að ganga um eignina heima fyrir og eftir skoðun, mæla fyrir húsgögnum o.fl.**
Núverandi skipulag eignar:Alrými með stofu, eldhúsi og borðsstofu, 2 svefnbergi, suðursvalir, baðherbergi með þvottaaðstöðu. Geymsla í kjallara.
Nánari lýsing;Íbúðin hefur verið talsvert mikið uppfærð og endurnýjuð á síðustu árum. Lyfta er í húsinu.
Rauður vínildúkur er á allri íbúð nema á baðherbergi sem er með rauðlökkuðu gólfi.Forstofa: Tvöfaldur innbyggður hvítur fataskápur er í nettri forstofunni.
Eldhús: Er í miðju íbúðar og er opið við stofu. Nýleg hvít eldhúsinnrétting teiknuð af innanhússhönnuði. er eftir veggnum. Efri skápar eru með glerhurðum og er gler á milli efri og neðri skápa. Skúffur eru í sökkli og því er einstaklega mikið geymslupláss í innréttingunni. Gashelluborð. Rauður gufugleypir, bakaraofn, Tengi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél getur fylgt með í kaupum.
Baðherbergi; Allt endurnýjað. Upphengt salerni og tengist klósettkassinn hvítri innréttingu undir handlaug á afar nettan og smekklegan hátt, borðplata, speglaskápur á vegg með lýsingu. Gler er á milli innréttinga og í hornsturtunni. Bogadregið sturtuhengi. Hvítur handklæðaofn, Rafmagnstengi fyrir þvottavél.
Stofa: Skemmtileg í laginu og björt með gluggum til tveggja átta sem vísa út á skólavörðustíginn.
Svefnherbergi I: Rúmgott með hvítum þreföldum innbyggðum fataskáp eftir einum vegg. Útgengi er út á rúmgóðar suðursvalir sem vísa inn á baklóð.
Svefnherbergi II: Ágætlega rúmgott með hvítum tvöföldum innbyggðum fataskáp.
Sérgeymsla í kjallara: Rúmgóð og með hillum.
Staðsetning er virkilega góð en íbúðin er í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu og mannlíf.
Vakin er athygli á að hægt er að sækja um bílastæðakort hjá Reykjavíkurborg og er árgjald 16.800-33.600 kr eftir tegund bíls og gildir fyrir lagningu í stæða innan ákveðins svæðis frá íbúðinni.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar er hjáGuðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur: [email protected], sími 897 7712
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður: [email protected], sími 822 5124.