201, Kópavogur

Haukalind 18

144.900.000 KR
Raðhús
5 herb.
206 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Raðhús
  • Stærð 206 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1999
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

-- Eignin er seld með fyrirvara, mikill áhugi var á eigninni og er ég með kaupendur á lista af eignum á svæðinu. Hafið samband Erling Proppé Lgf. s. 6901300 & [email protected] -- 

Erling Proppé & REMAX kynna: Glæsilegt og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með glæsilegu útsýni á eftirsóttum stað við Haukalind í Kópavogi.

Allar nánari upplýsingar hjá Erling Proppé Lgf. s. 6901300 & [email protected] 


Eignin er skráð 206,7 fm og skiptist í eldhús, borðstofu, setustofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, sjónvarpsherbergi, þvottahús og bílskúr.

Nánari lýsing: 60x60 flísar á forstofu, eldhúsi, gestasalerni.  
Forstofa: Flísar á gólfi, rúmgóðir fataskápar. 
Gestasnyrting: Endurnýjað á síðustu árum, flísar á gólfi og upp hálfan vegg, stór spegill, vegghengt salerni og gluggi. 
Eldhús: Eldhúsið var opnað og sett upp falleg sérsmíðuð innrétting frá GKS, mjög gott skápapláss og tækjaskápur, fallegur steinn á eyju/bryggju sem hægt er að sitja við, gufuofn og bakaraofn í vinnuhæð frá miele, spanhelluborð frá miele, stál á borðum við vask og helluborð, gluggi sem gefur góða birtu. 
Setustofa og borðstofa: mjög rúmgóðar, bjartar, samliggjandi stofur með stórum gluggum og frábæru útsýni, mikil lofthæð, niðurlímt parket á gólfum, útgengi á svalir með fallegu útsýni. 
Í stofum og eldhúsi er innfelld lýsing. 
Framan við húsið er sólpallur með skjólgirðingu sem snýr í suður, fyrir aftan hús er garður og góð verönd sem nær síðdegis sólinni.  

Neðri hæð: Gengið um steyptan og parketlagðan stiga með stálhandriði niður á neðri hæð hússins
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hornbaðkar, vegghengt salerni, góð innrétting með vaski, sturtuklefi, góðir skápar, handlæðaofn. 
Þvottahús: við hlið baðherbergis, tengi fyrir vélar, góðar innréttingar.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott herbergi, flísar á gólfi, útgengt í garðinn, mjög rúmgott fataherbergi, innangengt í rými sem hefur verið notað sem skrifstofa/sjónvarpsherbergi. 
Afþreyingarherbergi: Er innangengt úr hjónaherbergi og þvottahúsi, gluggalaust. 
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með parket á gólfi 
Barnaherbergi 2: Rúmgott herbergi með parket gólfi. 
Sjónvarpsherbergi: er á milli baðherbergis og barnaherbergis, gluggalaust. 

Bílskúrinn (26,8 fm) er innbyggður í húsið, hurð með rafmagnsopnun, flísar á gólfi. Stórt geymsluloft yfir aftasta hlutanum. Búið er að setja upp rafhleðslustöð, samkomulag um hvort að hún fylgi.  

Viðhald/endurbætur:
- Skipt um útidyrahurð 2021
- Búið að skipta um alla ofna í húsinu sl. 6 ár. 
- Eldhús var endurnýjað 2006
- Gólfefni voru endurnýjuð á forstofu, eldhúsi og alrými að hluta. 2006
- Gestasalerni endurnýjað 2006
- Drenað að framan 2009 ca.
- Bætt við flasningum í kringum þakglugga 2016 ca. 

Afar fallegt, vandað og vel staðsett hús - stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Erling Proppé lgf, s: 690-1300, [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.