Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna: 119,8fm sumarhús/einbýli á einni hæð á 4,050 fm eignarlóð að Norðurnesi 94 í Kjós á skipulögðu sumarhúsasvæði.
* Eigendur skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu *
Húsið samanstendur af anddyri, stofu og eldhúsi í opnu rými, 3 svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi.
Sænskt einingahús sem afhendist fokhelt, tilbúið að utan. Steypt plata með hitakerfi. Þrefalt gler í gluggum. Rafmagn, hitaveita, ljósleiðari. 119,8fm hús og möguleiki á 30 fm gestahúsi. Svæðið er lokað með símahliði.
Svæðið er vel skipulagt með mikilfenglegu útsýni, mikil kyrrð á staðnum. Landið er rétt hjá Laxá í Kjós, keyrt er meðfram og upp með ánni. Sandfell er í norður og Skálafell rís í suðri. Þegar horft er í norður er Vindáshlíð rétt hjá.
Húsið er staðsett cirka 25 km frá Mosfellsbæ.
Hægt að skoða heimasíðu sumarbústaðarfélagins á svæðinu. www.norðurnes.is - Ath. þeir sem kaupa lóð/hús á staðnum eru skyldugir að vera í sumarhúsafélaginu (árgjald 40.000) og fylgja því ýmis þægindi.
Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal, löggiltur fasteignasali í síma: 662-6163 eða á email: [email protected]
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.