806, Selfoss

Sandskeið C-gata 5

86.000.000 KR
Sumarhús
5 herb.
100 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Sumarhús
  • Stærð 100 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2022
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali kynnir: Nýjan og fallegan 4. herbergja sumarbústað með heitum potti og gufu að Sandskeið C gata 5 í landi Miðfells 

Sandskeið er sumarbústaðarbyggð í landi Miðfells í Bláskógarbyggð, í um 50 mínútna fjarlægð frá Reykajvík.
Hverfið er vel skipulagt og liggur á sérstaklega fallegu svæði við Þingvallavatn. Akstri inn á svæðið er stillt í hóf með símahliðum, annað við Miðfellsveg og hitt við þjóðveginn. Einnig er hægt að keyra innan hverfis að Þingvallavatni.
C-Gata liggur sunnarlega á svæðinu og standa alls 14 lóðir við götuna. Útsýni yfir Þingvallavatn frá sumarhúsunum.
Hverfið stendur á köldu svæði og er rafmagnskynding í húsunum.

Húsin eru vönduð 100m² timburhús, með timburgólfi, grunduð á steyptum dregurum og standa hvert um sig á 5000m² eignarlóð. Húsin eru klædd að utan með standandi timburklæðningu.
Allir gluggar og hurðir eru úr pvc. Inn- og útveggir eru klæddir með OSB plötum og gifsi. Loft er klætt með OSB plötum og gifsi.

Sameiginleg borhola fyrir kalt vatn er fyrir húsin þrjú.

Öll tæki eru AEG frá Ormsson
  • Ofn - Combiofn - Span helluborð - Hangandi gufugleypir með ljósi - innfelldur ísskápur - innfelld uppþvottavél - AEG þvottavél - AEG þurrkari
- ADAX kolagráir rafmagnsofnar með wifi með sérstöku stýringarappi sem hægt er að tengja í símann
- Vínilparket á öllum gólfum
- Allt val á litum var gert í samráði við Sir Arnar Gauta
- Svartir Free at Home tenglar
- Cat tengi í öllum rýmum
- Free at home ljósastýringakerfi
Heitur Pottur frá Norm-x
  • Öryggisgler í kringum pottinn með útsýni yfir Þingvallavatn
// Tunnugufa með panorama glugga með útsýni yfir Þingvallavatn með rafmagnsofni
// Gegnumstreymiskerfi fyrir heitt vatn, eitt fyrir hitann í húsinu og annað fyrir heita pottinn.
// 120 fermetra sólpallur sem liggur meðfram þremur hliðum bústaðsins
// Reyklituð gler á öllu grindverki 
// Upplýst Bílaplan með svörtum mottum sem halda steinunum á planinu
// Innfelld lýsing á tröppum í heita pottinn
// Lýsing fyrir utan gufuna
// Lýsing á allri skjólgirðingu
  • Baðherbergi
- 160cm sturtubotn dökkrgrár - Reyklitað sturtugler - Öll tæki á baði eru frá Ísleifi - Rafmagnshandklæðaofn

Útgengt er á pall frá hjónaherbergi, stofunni og hjá baðherberginu
Öll lýsing er frá Rafport
Yfirfellar hurðar frá Birgisson eingöngu með einum hurðarhúni
Stór fataskápur með rennihurðum í hjónaherbergi
33% eignahlutur í borholu sem deilist með húsum 5-7-9
Um er að ræða 3 sumarbústaði sem liggja í lítilli brekku hægt er að kaupa þá alla og hægt er innrétta að eigin vali efsta bústaðinn.
Húsinu selst miðað við byggingarstig 7
Byggingaraðili er: Gunnarsfell verktakar ehf // Heimasíða byggingaraðila


Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða [email protected]