210, Garðabær

Þrastarlundur 7

179.900.000 KR
Einbýli
4 herb.
238 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 238 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1973
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu: Glæsilegt og mikið endurbætt einbýlishús á einni hæð með bílskúr á góðum stað við Þrastarlund í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Húsið er staðsteypt og er birt stærð eignar samtals 238,9 fm, þar af er íbúðarhluti 179,1 fm og sambyggður bílskúr 59,8 fm. Um er að ræða einstaklega fallega lóð með fallegum gróðri í bland við stórt bílaplan. Húsið er vandað og hefur verið vel við haldið.

Skipulag telur: Þrjú til fimm svefnherbergi, stóra stofu, borðstofu í opnu rými með eldhúsi, sjónvarpshol ásamt alrými/skrifstofurými og tvö baðherbergi. Fallegt hvíttað eikarplankaparket á öllum rýmum fyrir utan votrými þar sem eru dökkgráar náttúruflísar. 

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða Ástþór Reynir í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] eða [email protected]

Nánari lýsing
Forstofa er með hvítum fataskáp frá GKS, flísar á gólfi.
Gestasalerni er flísalagt með upphengdu salerni, handlaug og sturtu.
Eldhús er með hvítri innréttingu frá GKS, kvarts steinn á borðum, háfur frá Elica. Spanhelluborð, 2 ofnar í vinnuhæð (stór blástursofn og minni blástursofn með örbylgju) ásamt innbyggðri uppþvottavél, allt frá Miele ásamt innbyggðum ísskáp frá Liebherr.
Borðstofa er með hvitum veggskápum frá GKS.
Stofa rúmgóð og björt. Útgengt út á fallega verönd.
Sjónvarpsherbergi ásamt alrými/skrifstofurými, rúmgott og bjart með gólfsíðum glugga.
Hjónaherbergi með fataherbergi og góðum hirslum frá GKS. Útgengt út í garð.
Barnaherbergi I með góðum hvítum fataskápum frá GKS.
Barnaherbergi II með góðum hvítum fataskápum frá GKS.
Baðherbergi, flísalagt með upphengdu salerni, baðkari, handlaug og hvítri innréttingu.
Þvottahús með hvítum skáp.
Geymslur tvær geymslur inn af bílskúr með hillum.
Bílskúr með nýlegum bílskúrshurðum og epoxý gólfi ásamt þriggja fasa rafmagni.

Glæsileg verönd, gróinn garður með skjólgóðum timburpalli sem snýr í suður.

Eftirfarandi framkvæmdir hafa farið fram undanfarin ár:
2011 - Byggt við húsið
2016 - Flest öll gler og opnanleg fög endurnýjuð í húsinu.
2017 - Skipt var um þakjárn, pappa, þakrennur og þakkant.
2019 - Skipt um hluta lagna í bílskúr, bílskúrshurðar og epoxy sett á gólf.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða [email protected]
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.