RE/MAX og Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali kynna: Verslunar, lager- og skrifstofuhúsnæði að Mörkinni 1, Reykjavík. Húsnæðið skiptist í 3 einingar, 349,5 fm skrifstofu húsnæði (bakatil), 504,2 fm lagerhúsnæði (bakatil) ásamt 314,1 fm verslunarými á 1. hæð, samtals 1167,8 fm. Góð aðkoma er að húsinu og fjöldi bílastæða, mikið auglýsingagildi.
Verslunarrýmið: Verslunarhlutinn er 314 fm. Hann skiptist í stóran sal með góðri lofthæð, tvær skrifstofur, eldhús með vandaðri innréttingu og borðkrók og tvo flísalögð salerni. Flísar og parket á gólfi. Hæðin er snyrtileg og nýlega uppgerð. Lagarhúsnæði: Hluti rýmisins er einn stór salur sem gæti hentað undir ýmis konar starfsemi eins og t.d. lager, léttan iðnað eða markað. Lofthæðin er 4 metrar, góð aðkoma og innkeyrsluhurð. Skrifstofurými/Lager: Hefur verið innréttaðað sem verslunar og skrifstofuhúsnæði á mjög smekklegan hátt með skrifstofu, eldhúsaðstöðu, 2 opnum rýmum ásamt stóru lagerrými með innkeyrsluhurð.
Frábær staðsetning. Næg bílastæði. Góð aðkoma. Lagerhúsnæðið: Möguleiki að hólfa niður og leigja út frá sér. Eign með mikla möguleika.