210, Garðabær

Súlunes 17

230.000.000 KR
Einbýli
8 herb.
293 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 293 M²
  • Herbergi 8
  • Stofur 4
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1990
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Vandað og vel staðsett 232,3 fm einbýlishús með frístandandi 61,2 fm bílskúr á 1118,0 fm. endalóð/eignarlóð á rólegum og eftirsóttum stað með sjávarútsýni við Súlunes 17, 210 Garðabæ. Samtals stærð 293,5 fm. 

Húsið er vel byggt hús með glæsilegu vængjaþaki sem setur mikinn svip á húsið. Koparrennur eru á öllu húsinu og marmara gluggasillur utan á húsinu.

Mjög flott og góð aðkoma er að húsinu.


Smelltu á link til að skoða húsið í 3-D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]

Um er að ræða vandað og flott hús byggt á pöllum sem skiptist í þrjá palla. Gengið er inn í forstofu með fataskápum og flísalagt gólf. Innangegnt er frá forstofu í mjög rúmgott þvottahús með flísum á gólfi og innréttingum með gott vinnu- og skápaplássi. Innaf þvottahúsi er lagnarými. Frá forstofu er komið inn á flísalagt hol með mikilli og flottri lofthæð, þar fyrir miðju er timburstigi upp á mið pallinn. Á hægri hönd er baðherbergi með flísalagt gólf og flísalagt í kringum sturtu og salerni. Undirlímdur vaskur, innbyggð blöndunartæki, upphengt salerni. Á hæðinni eru einnig tvö rúmgóð barnaherbergi, annað þeirra er tvískipt herbergi. Bæði herbergin eru með fataskápa og flísalagt gólf. 

Þegar komið er upp á mið pallinn er komið í bjarta og rúmgóða sjónvarpsstofu með flísum á gólfi og ofnum í gólfi. Útgengi er þaðan út í garðinn á tvo vegu annars vegar í suður og hins vegar í suðvestur. Hjónasvítan er staðsett á miðpallinum, hún er bæði rúmgóð og björt með parket á gólfi, sér fataherbergi með opnum fataskápum og sér baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Á baðherbergi er bæði baðkar og sturtuklefi ásamt innréttingu með tveimur handlaugum auk salerni sem er aðskilið frá með tveimur veggjum. 

Af miðpalli er svo gengið upp í rúmgott og bjart alrými á efri palli með flott og gott útsýni til sjávar og mikilli lofthæð. Stór og flottur útsýnisgluggi sem nýlega var stækkaður, fallegt útsýni út á flóann. Alrýmið samanstendur af eldhúsi, borðstofu, stofu og skrifstofurými. Efri hæðin er nýlega endurnýjuð, komin er hiti í gólf, ný eldhúsinnrétting með gott skápa- og vinnupláss, eyju og innbyggðum Miele eldhústækjum og Liebherr ísskáp. Útgengt er út á svalir frá bæði eldhúsi/borðstofu og frá hinum enda stofunnar, svalir í suðvestur sem liggja í vinkil og með aðgengi út í garðinum. Hönnunarstofan Sæja hannaði efri hæðina.

Garðurinn umhverfis húsið er skjólgóður, flottur og vel skipulagður. Tvær hellulagðar verandir með hitalögn að hluta til. Heitur pottur ásamt baðhúsi með sturtu og þurr sauna. Garðurinn hefur þann kost að bera að hann er i góðu skjóli frá öðrum.

Sérstæður glæsilegur 61,2 fm. bílskúr með háum innkeyrsluhurðum, góðri lofthæð og millilofti. Skápum með góðu skápaplássi og gluggum sem gefa birtu inn. Skolvaskur með heitt og kalt vatn. Hiti er í plani og við inngang inn í húsið.  
 
Þess má geta að lóðin fyrir framan sem stendur við sjóinn er ekki skipulögð sem byggingarlóð, lóðin er friðuð, þannig að sjávarútsýnið mun halda sér. 

2018: Neðra baðherbergi endurnýjað, hannað af Rut Kára.
2021: Efsta hæðin endurnýjuð, hönnuð af Hönnunarstofu Sæju. Innrétting í eldhúsi var sérsmíðuð af Hegg innréttingum ehf. 

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / [email protected] og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / [email protected]

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-