YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 62 M²
-
Herbergi 2
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 1
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1951
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir löggiltir fasteignasalar kynna mikið endurnýjaða, tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngang í tvíbýlishúsi við Hæðargarð.
Að innan var íbúðin endurnýjuð nánast algjörlega í framkvæmdum sem lauk í janúar 2022. Skipt var um innréttingar, tæki, hurðar, gólfefni, raflagnir og alla glugga auk þess sem opnað var úr stofu út á yfirbyggðan sólpall. Skólp var myndað að brunni.
Að utan var skipt um þakið 2007 og settir kvistar, Húsið var viðgert fyrir 8 árum, sprunguviðgert, framhlið heilmúruð og húsið málað.
Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson í síma 699-7372 eða [email protected] og Magga Gísladóttir í síma 698-7494 eða [email protected]Kíktu í heimsókn á Facebook eða
á InstagramÍbúðin skiptist í forstofu, miðrými, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og stofu.
Harðparket er á gólfum í öllum rýmum nema baðherberginu sem er flísalagt.
Garðurinn er í óskiptri sameign með efri hæðinni fyrir utan sólpallinn sem er séreign íbúðarinnar.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með geymsluplássi og á sólpallinum er læst geymslurými sem fylgir íbúðinni.
Mjög falleg og smekklega uppgerð eign á góðum stað nálægt allri helstu þjónustu og Fossvogurinn steinsnar frá.