101, Reykjavík (Miðbær)

Nönnugata 1B

89.900.000 KR
Einbýli
4 herb.
113 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 113 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1953
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna: 
Virkilega sjarmerandi 113,2 fm einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Reykjavíkur með góðri verönd sem er yfirbyggð að hluta.
Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja vera í miðju borgarinnar og í góðu göngufæri við mannlífið.
Eignin hefur fengið ágætis viðhald frá því að seljandi keypti árið 2007.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið [email protected]

 * Kjallari undir hluta hússins - ÓSKRÁÐIR FERMETRAR *
* Þak málað og yfirfarið 2017 *
* Gluggar og tréverk málað að utan 2023 *
* Ofnakerfi yfirfarið að hluta *
* Raflagnir yfirfarnað að hluta *
* Timburverönd - Yfirbyggð að hluta *

 
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál hússins 113,2 fm ásamt óskráðu rými í kjallara, undir hluta hússins.
Eignin skiptist í tvær hæðir, hvor um sig er skráð 56,6 fm.

Á neðri hæð eru: anddyri, eldhús, stofa, borðstofa, gestasalerni og geymsla í kjallara sem er óskráð rými.
Á efri hæð eru:  þrjú svefnherbergi, baðherbergi m/tengi fyrir þvottavél,og geymslua/skrifstofa.


Nánari lýsing eignar:
Neðri hæðin: 
Anddyrið
 er með flísum á gólfi og fataskápum. Úr anddyri er komið inn í miðrými neðri hæðar og er eldhúsið á hægri hönd.
Í eldhúsinu er viðar innrétting með flísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, opnanlegur gluggi og parkt á gólfi. 
Á vinstri hönd úr miðrými er lítið gestasalarni með flísum á gólfi. Þar við hliðina er gott rými fyrir litla skrifstofu en þar er hleri í gólfi sem farið er niður í upphitaða geymslu í kjallaranum sem er óskráð rými.
Stofan og borðstofan eru í samliggjandi, opnu og björtu rými þar með parketi á gólfi. Úr borðstofunni er útgengt á viðarverönd sem er yfirbyggð að hluta. 
Fallegur stigi upp á efri hæðina er upprunalegur og setur fallegan sjarma á húsið.
Efri hæðin:
Þegar upp er komið er lítil geymsla á vinstri hönd sem hefur verið innréttuð sem skrifstofa. Enginn gluggi er á því rými en lofttúða, en þó gæti verið möguleiki á að setja glugga.
Herbergi I er rúmgott hjónaherbergi, með opnum fataskáp og parketi á gólfi. 
Herbergi II og III eru í svipaðri stærð með parketi á gólfum.
Baðherbergið er í góðri stærð með opnanlegum glugga, baðkari, innréttingu undir og við handlaug, tengi fyrir þvottavél, flísar í kringum baðkar og á veggjum en dúkur er á gólfi. 
Árið 2017 var þak hússins málað, gluggar að utan og viðarveröndin ásamt handriði. Einnig var sturtugler við baðkarið endurnýjað.
Sumarið 2023 var mest allt tréverk málað aftur.
Um er að ræða virkilega sjarmerandi eign í hjarta Reykjavíkur
Vakin er athygli á að hægt er að sækja um bílastæðakort hjá Reykjavíkurborg og er árgjald 16.800-33.600 kr eftir tegund bíls og gildir fyrir lagningu í stæða innan ákveðins svæðis frá eigninni.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914  eða á netfangið [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.


Heimasíða RE/MAX
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk