YFIRLIT
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 143 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1984
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Háseylu 1, Innri Njarðvík í Reykjanesbæ fnr. 29-3352Eignin er skráð 143,3 fm og er húsið timburhús á einni hæð og er skráð byggingarár 1984. Samkvæmt skráningu þá er íbúðarhlutinn 106,7 fm og bílskúr 36,6 fm en bílskúrnum hefur verið breytt í íverurými og er það notað í dag sem rými fyrir daggæslu. Lóðin er skráð 861 fm. Skoðið þrívíddarmyndatöku hér að neðan til að fara um húsið í tölvunni eða símanum. Einnig gott að sjá skipulag hússins á teikningu sem er þar sem ljósmyndirnar eru af eigninni. 3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Hellulagt bílaplan og að inngangi í húsið.
Forstofa: Vinyllísar á gólfi. Góður hvítur fataskápur.
Stofa/borðstofa: Vinilparket á gólfi. Útgengt er úr rýminu út á sólpall.
Eldhús: Vinylparket á gólfi. Stór hvít innrétting með góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð. Helluborð með góðum gufugleypi yfir.
Baðherbergi: Vinylflísar á gólfi. Fibo veggklæðining frá Þ. Þorgrímssyni. Baðkar. Innrétting með handlaug. Upphengt salerni. Gluggar eru í rýminu. Verið er að útbúa sturtu í baðherberginu. Baðherbergið er ekki fullklárað en skilast eins og það er núna og verður við skoðun.
Þvottahús: Málað gólf. Rýmið er ekki fullstandsett.
Leikrými: Er þar sem áður var bílskúr og væri hægt að gera tvö rúmgóð svefnherbergi úr þessu rými sem í dag hýsir daggæslu.
Geymsla: Er innst í bílskúrnum sem var og er nú daggæslurými.
Lóð: Frágengin lóð með tyrftri grasflöt og pöllum með skjólveggjum.
Geymsluskúr: 14 fm skúr með rafmagni sem nýtist vel sem geymsla.
Háseyla 1 er gott hús vel staðsett í Akurhverfi í Innri Njarðvík í Reykjanesbæ. Húsið við Háseylu 1 stendur á stórri lóð og hefur mikil vinna verið lögð í útisvæðið með stéttum, 2 pöllum og 14 fm geymsluskúr á lóð sem nýtist mjög vel sem geymsla fyrir alls konar útidót. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir framkvæmdir og lýsingu á eigninni frá seljendum. Þær framkvæmdir sem eru í gangi verður kaupenda að klára. Gólf: Nýtt gólfefni á húsi 2021 - Nýtt gólfefni á bílskúr 2022 -Ný hitagrind, gólfhitakerfi bætt við íbílskúr - Nýtt frárennsli lagt í bíslskúrsgólf fyrir sturtuklefa, þvottavél, niðurfall og möguleika á klósetti Lokað ofnakerfi frá upphafi. Vínylparket á gólfi frá Vínyl Parket (nú Fagefni) Bílskúr: Vínylparket (Húsa) Fibo plötur frá Þ. Þorgrímssyni a baðherbergi. Innréttingar hússins frá 2021 Eldhús: Ný Ikea innrétting, tækjabúnaður allur þaðan líka, venjulegt helluborð ekki span - Þvottahús: Málað gólf, ekki tilbúið rými Pallur: Hitaveituskel getur fylgt, er ekki búið að tengja - Kofi: Tengdur í rafmagn Lóð: Búið að grafa fyrir gróðurhúsi/kofa, leggja ídráttarrör fyrir vatni og rafmagni í hann. Þak: Í góðu standi/Kominn tími á málun Húsið málað að utan 2023 - Lagnir: Eirlagnir Gluggar: Nýjir í bílskúrshurð, aðrir upprunalegir, Þarf að skipta um gler í stofu - Kominn tími á að mála glugga og skipta um nokkur gler. Framkvæmt innanhúss: • Hurð opnuð frá herbergisgangi inn í bílskúr. • Dyr færðar í eldhúsi. • Dyr lokað úr eldhúsi inn í gamla þvottahús. • Vegg breytt til að koma nýrri hurð í gamla þvottahús á herbergisgang. • Veggur opnaður til að koma sturtuklefa utan á baðherbergi. •
Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða [email protected].
Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.