YFIRLIT
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 283 M²
-
Herbergi 8
-
Stofur 3
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1971
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Vel skipulagt og mikið endurnýjað 283,3 fm. einbýlishús á tveimur hæðum við Sunnuveg 33, 104 Reykjavík. Frábær og eftirsótt staðsetning í mikilli nálægð við útivistarsvæðið í Laugardal.
Skipulag eignar: fjögur til fimm svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, tvennar stofur, sér þvottahús, geymsla og bílskúr.
Húsið var endurhannað og endurnýjað mikið frá árinu 2006. Samhliða var skipt um rafmagns- og vatnslagnir ásamt því að þakpappi og þakkantur var endurnýjaður. Útisvæði fyrir framan eignina var endurnýjað fyrir þremur árum síðan, hiti lagður í plan, gangstétt og stiga. Þvottahús var endurnýjað árið 2021. Bílskúr fékk nýtt epoxy á gólf árið 2023.
Húsið getur verið laust til afhendingar við kaupsamning.
Smelltu á link til að skoða húsið í 3-DBókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]Nánari lýsing:Góð og falleg aðkoma er að húsinu, hiti er í bílaplani, gangstétt og í stiga að inngangi og á útisvæði fyrir ofan bílskúrinn.
Anddyri/forstofa er á efri hæð með fataskápum og flísum á gólfi. Þar við hlið er gestasalerni með upphengt salerni, handlaug, spegill og opnanlegan glugga.
Herbergi þar við hlið er rúmgott með flísum á gólfi og glugga út að bakagarði hússins.
Frá forstofu er gengið inn í mjög bjart og rúmgott alrými með flísum á gólfi, alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús. Stórir gluggar eru í suður, austur og vestur. Gluggar gefa góða birtu inn í alrýmið. Útgengt er frá stofu út á steinsteypta upphitaða verönd í suður með útsýni yfir
Laugardalinn. Eldhús er með vandaðri innréttingu frá JKE Design, blanda af hnotu og sprautulökkuðum skápum. Stór eldunareyja klædd með granítsteini. Vönduð tæki frá Miele, gaseldavél, 2 ofnar. Liebherr ísskápar eru í innréttingu
Frá alrými eru tveir inngangar með rennihurðum inn í rúmgott sjónvarpstofu á efri hæðinni með útgengi út á stiga niður að lóð. Auðvelt væri að nýta sjónvarpsstofuna sem fimmta svefnherbergið.
Neðri hæð: Gengið er niður flísalagðan steinsteyptan stiga með glerhandrið og stórum fallegum glugga sem gefur góða birtu inn, niður í flísalagt hol með aðgengi að öðrum vistarverum hæðarinnar.
Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi með gegnheilt eikarparket á öllum þeirra. Tvö þeirra eru rúmgóð barnaherbergi og það þriðja, hjónasvíta með fataherbergi og útgengi út á timburlagða verönd til suðurs.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og upp meðfram baðkari. Innrétting er með handlaug og innfelldum blöndunartækjum ásamt skúffum og stórum spegli auk þess er einn hvítur baðskápur á vegg. upphengt salerni og stór flísalögð sturta með tveimur sturtuhausum og innfelldum blöndunartækjum. Sturtan er með flísalagðan setbekk og aflokuð með glerskilrúmi sem gefur möguleika á vatnsgufu í sturtu.
Frá hinum enda hæðarinnar er gengið inn í sér þvottahús með skápum, tengi og aðstöðu fyrir þvottvél og þurrkara ásamt aðgengi að bílskúr sem og annan inngang út á lóð hússins.
Bílskúr er sérlega rúmgóður með rafdrifna hurð og með epoxy á gólfi.
Um er að ræða fallegt, bjart og rúmgott einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað í Laugardalnum.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 /
[email protected] og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 /
[email protected]Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-